Heilsan í 1. sæti á nýja árinu Reebok Fitness kynnir 2. janúar 2018 11:00 Katrín Björk Eyvindsdóttir og Unnur Pálmarsdóttir hlakka til að taka vel á móti þér hjá Reebok Fitness. LAUFEY „
Við hjá Reebok Fitness hefjum nýtt heilsuár af orku, gleði og krafti. Fjölbreytt og spennandi hóptímadagskrá hefst 8. janúar og ættu allir að finna námskeið og hóptíma við sitt hæfi,“ segir Unnur Pálmarsdóttir, markaðs- og fræðslustjóri Reebok Fitness. „Við bjóðum upp á nýjung í hóptímum, sem er infrarauður hiti og hefur notið mikilla vinsælda erlendis. Einnig erum við með tíma í Hot Barre, Trampoline Fitness, Hot Body, Zumba, Les Mills hóptímakerfin, Hot Yoga, Coach by Colour (CBC) Spinning, Trigger Point Pilates og margt fleira,“ segir Unnur. „Okkar sérstaða er að bjóða upp á líkamsrækt fyrir alla aldurshópa með ólík markmið í huga. Við erum með fjölbreytt og vönduð námskeið við allra hæfi. Má þar nefna Fusion Pilates sem er nýtt námskeið hjá okkur, 360 Total Total Body, Betra Form, Betra Líf, Bikini Body Blast, Fitness Áskorun, Fitness Box, Strong Body Burn, Strong New Skinny og The Glute Workshop,“ segir Katrín Björk Eyvindsdóttir, verkefnastjóri Reebok Fitness.Reebok Fitness hefur opnað í Faxafeni 14 Í nóvember opnaði Reebok Fitness sína sjöundu líkamsræktarstöð í Faxafeni 14 sem er 1.600 m2 að stærð. „Við kynnum til leiks mýkri stöð í Faxafeninu. Líkamsræktarstöðin er með þremur glæsilegum hóptímasölum og nýjung á markaðnum, sem er infrarauði hitinn. Það sem felst í infrarauðum hita er að með því að hita líkamann upp innan frá eykst teygjanleiki bandvefjarins svokallaða sem leiðir til aukins hreyfanleika. Loftið er talið heilnæmara fyrir þá sem viðkvæmir eru og er talið að þessi hitun hafi styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi. Infrarauðu geislarnir hafa hreinsandi áhrif þar sem þeir ýta undir efnaskipti og auka framleiðslu á svita. Það að stunda hlýtt jóga eykur vellíðan í líkamanum á eftir,“ upplýsir Unnur.Hjá Reebok Fitness er boðið upp á nýjung í hóptímum, sem er infrarauður hiti og hefur notið mikilla vinsælda erlendis.LAUFEYNotalegt andrúmsloft Á komandi ári verður boðið upp á barnagæslu í Faxafeninu en þar er andrúmsloftið notalegt, rólegt og fjölskylduvænt. „Við leggjum mikið upp úr hreinlæti á öllum okkar líkamsræktarstöðvum sem eru með nýjustu lyftingatækin og einvala lið þjálfara, kennara og starfsfólks. Viðskiptavinir okkur hafa einnig aðgang að þremur sundlaugum í Kópavogi og Hafnarfirði, sem eru Kópavogslaug, Ásvallalaug og Salalaug. Við erum spennt að fara inn í nýtt heilsuár, það munu allir geta fundið sér eitthvað hjá okkur hvort sem það er í formi námskeiða eða hóptíma,“ segir Katrín Björk.Fjölbreyttir hóptímar Hóptímataflan hjá Reebok Fitness fyrir árið 2018 er glæsileg og þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Viðskiptavinir okkar leita eftir góðu andrúmslofti, fjölbreyttum hóptímum og námskeiðum. Við bjóðum upp á úrval hóptíma sem henta allt frá byrjendum til þaulreyndra íþróttamanna. Hot Yoga og Hot Body tímarnir eru gríðarlega vinsælir, enda mjúkir tímar í heitum sal sem er gott fyrir stoðkerfið. Einnig erum við með styrktar og þol hóptíma sem hafa verið vinsælir, Tabata, Body Pump, hjólatíma og fleira. Námskeiðin hefjast 8. og 9. janúar, allt frá námskeiðum fyrir byrjendur og til þeirra sem kjósa að takast á við meira krefjandi námskeið,“ segir Katrín Björk.Reebok Fitness í mikilli sókn Unnur hefur nýhafið störf sem markaðs- og fræðslustjóri hjá Reebok Fitness, en fyrirtækið er í örum vexti. Ráðning hennar er liður í að auka gæði í markaðs-, fræðslu- og mannauðsmálum fyrirtækisins. Unnur hefur unnið á flestum sviðum mannauðs-, markaðs- og fræðslumála og lauk MBA-gráðu 2012 frá Háskóla Íslands. Hún er nú M.Sc.-nemi í mannauðsstjórnun og mun útskrifast 2018. Unnur hefur starfað í heilsuræktariðnaðinum og við kennslu, þjálfun, fræðslu- og mannauðsmál í mörg ár og víða erlendis. Katrín Björk Eyvindsdóttir, verkefnastjóri Reebok Fitness, hefur mikla reynslu úr hóptímakennslu og úr líkamsræktargeiranum. Nánari upplýsingar um þjónustu Reebok Fitness, einkaþjálfun, hóptíma, skráningu á námskeið á heimasíðunni reebokfitness.is og Facebook-síðu.
Mest lesið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 Bíó og sjónvarp Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn Tíska og hönnun Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Lífið Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Tíska og hönnun Fleiri fréttir Spennan magnast í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum! Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Svefninn mun dýpri og betri með tilkomu Neubria Sleep Stórkostleg áhrif á fíngert hár Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Þetta eru snyrtivörurnar sem skipta mestu máli Troðfullt á fermingarkvöldi Hagkaups Páskaegg fyrir sanna bragðarefi Askja frumsýnir nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur „Femarelle það eina sem hefur virkað fyrir mig“ Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku Topp tíu listi yfir förðun og húðumhirðu fyrir ferminguna Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Spretthlaup frá grænmetisdeildinni niður í leikfangadeild Spennandi snúningur á ljúffengri klassík Sjá meira