Bílar

6.000 eintök seldust á tveimur mínútum

Finnur Thorlacius skrifar
Lynk&Co 01.
Lynk&Co 01.
Á nýju ári er ávallt forvitnilegt að rifja upp markverðustu fréttir bílabransans á nýliðnu ári. Það þótti eðlilega tíðindum sæta þegar kínverski bílaframleiðandinn Lynk&Co seldi á 2 mínútum og 17 sekúndum 6.000 eintök af sínum fyrsta bíl, Lynk&Co 01, og alla þeirra á netinu. Það gerði þennan jeppling að þeim bíl sem selst hefur hraðast allra bíla í heiminum.

Lynk&Co er í eigu kínverska bílaframleiðandans Geely, sem einnig á Volvo. Tilgangurinn hjá Geely með Lynk&Co merkinu er að selja þá eingöngu á netinu og án alls sölunets eða sýningarsala. Fyrir vikið getur Geely selt Lynk&Co bíla á mjög hagstæðu verði og kostar Lynk&Co 01 jepplingurinn aðeins frá 2,5 milljónum króna í heimalandinu. Geely ætlar að selja Lynk&Co bílana í Evrópu innan tíðar en ljóst verður að þar verða þeir eithvað dýrari en í Kína.

Ákveðið var að selja fyrstu 6.000 bílana eingöngu á netinu og ekki var að spyrja að eftirspurninni, hann seldist upp á fyrstu 137 sekúndunum sem opið var fyrir pantanir og fengu færri en vildu. Síðan þá hefur verið opnað fyrir frekari pantanir á bílnum, en fyrstu 6.000 fá bíla sína afhenta úr fyrstu framleiðslulotu. Lynk&Co 01 jepplingurinn er byggður á sama undirvagni og Volvo XC40 jepplingurinn og fær einnig vél úr herbúðum Volvo. Lynk&Co 01 verður á seinni stigum líka í boði sem tengiltvinnbíll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×