Innlent

Helmarinn á baki eftir eina kúlu úr skottertu

Jakob Bjarnar skrifar
Eins og sjá má af hinum myndarlega mari á baki mannsins hefur verið um heljarinnar högg að ræða.
Eins og sjá má af hinum myndarlega mari á baki mannsins hefur verið um heljarinnar högg að ræða.
Teitur Guðmundsson læknir segir að skjólstæðingur sinn hafi sloppið furðu vel eftir að hafa fengið eina kúlu úr skottertu í bakið.

Teitur tók mynd af manni sem kom til hans í skoðun með talsverða áverka á baki. Skotkaka hafði farið á hliðina og fór ein kúla úr henni í bak mannsins af um þriggja metra færi. Teitur segir mikla mildi að ekki fór verr og hefði sennilega ekki þurft að spyrja að leikslokum ef minni búkur en þessi fullvaxta karlmaður hefði orðið fyrir kúlunni.

Teitur segir að um hafi verið að ræða skotterta sem ber heitið Top Gun, tríhyrnd stór kaka sem hann ætlar að sé seld hjá björgunarsveitunum.

„Hann í raun gerir allt rétt, eins og allir gera sem eru með börn og buru úti á götu að skjóta,“ segir Teitur.

En, þá gerðist það að tertan valt á hliðina og skaut í átt að manninum. „Hann var hálfpartinn sleginn niður við þetta. Kúlan hrökk svo af manninum og sprakk í einhverra metra fjarlægt frá honum. Maður spyr ekki að leikslokum, ef þetta hefði farið í höfuð barns. Svakalegt högg. Ef þetta fer í lítinn kropp þá hefði getað farið verr.“

Maðurinn slapp furðu vel frá þessu atviki, heill og ekkert brotið en hið myndarlega mar segir allt sem segja þarf um hversu mikið höggið var. Teitur telur vert að ræða öryggisatriði betur þegar skotterturnar eru annars vegar. Hér er í það minnsta víti til varnaðar.

Að neðan má sjá auglýsingu frá Landsbjörg sem sýnir skottertuna Top Gun sem um ræðir. Auglýsingin er frá 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×