Lífið

Fékk nokkra daga til að fullkomna málverkið

Guðný Hrönn skrifar
Listmálaranum Rögnvaldi Skúla þótti gaman að sjá málverkið sitt í Áramótaskaupinu.
Listmálaranum Rögnvaldi Skúla þótti gaman að sjá málverkið sitt í Áramótaskaupinu. vísir/eyþór
Stórt og stæðilegt olíumálverk af herramanni, berum að neðan, spilaði mikilvægt hlutverk í Áramótaskaupinu 2017. Málverkið birtist í atriði þar sem gert var grín að svokölluðum „dick pics“ eða typpamyndum sem komu fram á sjónarsviðið í auknum mæli með tilkomu snjallsíma. Það er listmálarinn Rögnvaldur Skúli Árnason sem á heiðurinn af verkinu.

Spurður út í hvernig það kom til að hann var fenginn til að mála málverkið segir Rögnvaldur Skúli: „Ég vinn líka við leikmyndagerð og var einmitt að vinna í leikmyndinni fyrir áramótaskaupið. Ég fékk að lesa þetta tiltekna atriði áður en við fórum í tökur og fannst brandarinn efnilegur,“ segir hann.

Saga Garðarsdóttir fór á kostum í atriðinu þar sem hún afhjúpaði verkið.MYND/SKJÁSKOT
Rögnvaldur stökk á tækifærið og fékk nokkra daga til að mála verkið. „Ég fékk nokkra daga til að mála þetta áður en við fórum í tökur, maður vill oft nokkra daga í viðbót en það getur líka verið skemmtilegt að mála undir svona pressu,“ segir Rögnvaldur sem stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík sem unglingur og fór síðan í nám í Kaliforníu til að sérhæfa sig í olíumálun.

Rögnvaldur fékk nokkuð frjálsar hendur við gerð málverksins en vann það í samstarfi við handritsteymi áramótaskaupsins. „Ég bar undir þau nokkrar hugmyndir og við vorum öll sammála um að þessi útfærsla væri sú besta.“

„Pósan er nokkurs konar óður til skemmtilegrar sjálfsmyndar eftir Odd Nerdrum listmálara sem bjó hér um árið.“

Aðspurður hvar málverkið sé núna segir Rögnvaldur: „Eins og er þá er það heima hjá mér á vinnustofunni. Svo erum við eitthvað að pæla hvert það fer næst,“ segir Rögnvaldur sem þótti gaman að sjá málverkið sitt í Skaupinu. „Það var skemmtilegt að sjá það í beinni á meðan það prýddi vegginn hér í stofunni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×