Erlent

Fékk nóg af biðinni og settist á vænginn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Maðurinn hafði beðið í um hálftíma á flugbrautinni áður en hann ákvað að fá sér ferskt loft.
Maðurinn hafði beðið í um hálftíma á flugbrautinni áður en hann ákvað að fá sér ferskt loft. Skjáskot
Farþegi lággjaldaflugfélagsins Ryanair hefur bakað sér töluverð vandræði eftir að hafa yfirgefið flugvél félagsins og tyllt sér á væng vélarinnar.

Breska ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn hafi fengið upp í kok af því að sitja í vélinni sem hafði flutt hann til Malaga á Spáni. Flugtaki vélarinnar frá Lundúnum hafði seinkað um eina og hálfa klukkustund og var honum því nóg boðið þegar hann þurfti að bíða í hálftíma til viðbótar inni í vélinni meðan hún stóð á spænsku flugbrautinni. 

Hann ákvað því að opna neyðarútgang og koma sér makindlega fyrir á öðrum væng vélarinnar. Ekki fylgir sögunni hvað hann sat þar lengi en eftir samningaviðræður við áhöfn vélarinnar ákvað hann að halda aftur inn. Manninum, sem sagður er vera Pólverji á sextugsaldri, var síðan fylgt úr vélinni af öryggisvörðum.

Í myndbandi sem annar farþegi fangaði má sjá manninn leggja frá sér handfarangurinn áður en hann sest á vænginn. Fólki, að frátaldri áhöfninni hugsanlega, þótti uppátækið hið fyndasta og má heyra það hlæja í bakgrunninum.

Haft er eftir einum farþega vélarinnar að augnablikið sem maðurinn yfigaf vélina hafi verið „súrrealískt“ og er hann sagður hafa sagt, skömmu áður en hann opnaði neyðarútganginn: „Ég ferðast þá bara á vængnum!“ Annar farþegi telur þó að maðurinn hafi átt í erfiðleikum með andardrátt sökum astma og hafi því neyðst til að fá sér ferskt loft.

Talsmaður Ryanair segir að sama hvort það er þá líti flugfélagið málið alvarlegum augum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×