Kraftur í íslensku hvönninni SagaMedia kynnir 3. janúar 2018 10:30 Ingibjörg segir að SagaMedica fagni viðbótum við Voxis fjölskylduna. MYND/BALDURKRISTJÁNSSON
KYNNING - SagaMedica er íslenskt þekkingarfyrirtæki sem var stofnað árið 2000 og sérhæfir sig í rannóknum á íslenskum lækningajurtum og framleiðslu á náttúruvörum úr þeim. SagaMedica er leiðandi fyrirtæki í sölu náttúruvara hér á landi, en vörurnar eru afsprengi af rannsóknum Sigmundur Guðbjarnasonar, fyrrverandi háskólarektors og eins af stofnendum SagaMedica. Hann hefur rannsakað tugi íslenskra plantna á yfir 25 árum og af þeim hefur íslenska ætihvönnin mestu lífvirknina. Hún er uppistaðan í vörum SagaMedica, en mismunandi hlutar plöntunar innihalda efni með ólíka lífvirkni.Voxis hálsmixtúra með hvönn og lakkrísbragði.MYND/SAGAMEDICASíauknar vinsældir„Hvönnin hefur mikla sögulega þýðingu fyrir íslensku þjóðina, enda hefur hún skipað stóran sess í samfélaginu sem lækningajurt allt frá landnámstíð,“ segir Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðs- og sölustjóri. „Hvönnin sem SagaMedica notar er m.a. tínd í Hrísey, sem er vistvænt vottuð. Framleiðsluaðferðir SagaMedica eru mjög náttúruvænar og endurspeglar vörulína fyrirtækisins hreinleika. Viðskiptavinahópurinn hefur stækkað töluvert síðastliðin ár, en dyggur og traustur kjarnahópur hefur notað vörurnar frá upphafi með góðum árangri. Það segir allt sem segja þarf um þessar mögnuðu vörur og virkni þeirra,“ segir Ingibjörg. „SagaMedica framleiðir og markaðssetur vörur sínar bæði hér heima og erlendis,“ segir Ingibjörg. „Við seljum vörur okkur í Norður- Ameríku, Nýja-Sjálandi, Kanada, Svíþjóð og Finnlandi. Jafnframt glittir í nýja spennandi markaði og tækifæri erlendis sem eru komin langt á veg. Í gegnum árin höfum við víkkað út vörulínu okkar og við erum sífellt að leita nýrra leiða til að þróa vörur sem bæta lífsgæði fólks.“Voxis hálsmixtúra með hvönn og engiferbragði.MYND/SAGAMEDICABragðgóðar nýjungar í hálsinn„Við hjá SagaMedica fögnum nú bragðgóðum viðbótum við Voxis fjölskylduna, sem eru þegar komnar á næsta sölustað,“ segir Ingibjörg. „Voxis hálsmixtúra með hvönn og lakkrísbragði annars vegar og Voxis hálsmixtúra með hvönn og engiferbragði hins vegar. Virkilega góðar mixtúrur sem gagnast vel við kvefi, hósta og þurrki í hálsi. Þessi viðbót við vörulínuna kemur á góðum tíma nú þegar kvefpestir láta á sér kræla. Voxis hálstöflurnar eru svo vinsælustu hálstöflur landsins samkvæmt síðustu mælingum (Nielsen tölur, Gallup á Íslandi),“ segir Ingibjörg. „Þær eru einstaklega bragðgóðar og slá í gegn bæði hjá stórum sem smáum. Voxis hálstöflurnar eru unnar úr laufum hvannarinnar og eru fáanlegar sykurlausar og sykurlausar með engifer.“SagaPro við ofvirkri blöðru„SagaMedica býður fleiri áhugaverðar vörur úr hvönn og ber þar helst að nefna SagaPro við tíðum þvaglátum,“ segir Ingibjörg. „SagaPro hentar vel konum og körlum með minnkaða blöðrurýmd og einkenni ofvirkrar blöðru og bætir lífsgæði þeirra. Það hefur sýnt sig að SagaPro fækkar mjög salernisferðum jafnt að degi sem nóttu og bætir svefninn. Ákveðnir lífsstílshópar sækja einnig í auknum mæli í þessa vöru til að geta stundað áhugamál sín án vandkvæða, til að mynda golfarar, hlauparar, göngufólk og hjólreiðafólk. SagaPro hefur verið á markaðnum síðan 2005 og er eitt mest selda bætiefni á Íslandi. Í Bandaríkjunum hlaut SagaPro svo verðlaunin ,,Besta fæðubótarefnið árið 2013“ frá tímaritinu Better Nutrition og salan í Norður- Ameríku hefur verið að aukast jafnt og þétt síðastliðin þrjú ár,“ segir Ingibjörg.Voxis-fjölskyldan hefur stækkað.MYND/SAGAMEDICAVörn gegn pestum og bætt minni„SagaVita er önnur vinsæl vara sem gagnast vel til að verja sig gegn vetrarpestum, en auk þess finnst fólki hún mjög orkugefandi og auka afköst,“ segir Ingibjörg. „SagaVita er bæði fáanleg í vökva- og töfluformi. SagaMemo hefur góð áhrif á minnið en sú vara er unnin úr fræjum hvannarinnar og blágresi,“ segir Ingibjörg. „SagaMemo er notað af fólki sem vill viðhalda heilbrigðu minni.“Vörur SagaMedica fást í apótekum, heilsubúðum og stærri matvöruverslunum um land allt.
Heilsa Kynningar Mest lesið Talin ólíklegust til að komast áfram Lífið Bauð öllum bæjarbúum í matarboð Lífið Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Lífið „Vildi greinilega ekki að einhver úr fjölskyldunni kæmi að honum“ Lífið „Ekki lengur þræll þess að finnast ég ekki nóg“ Lífið Margrét Ýr og Reynir nýtt par Lífið Samantha Davis er látin Lífið Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Lífið Myndavél frá afa algjör fjársjóður Tíska og hönnun Fleiri fréttir 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Sjá meira