Lífið

Þetta smáatriði kostaði keppandann 330 þúsund krónur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einn óheppinn.
Einn óheppinn.
Alex Trebek, þáttastjórnandinn í spurningaþættinum vinsæla Jeopardy, gaf engan afslátt í þættinum á dögunum.

Þá var spurt um lag Coolio sem ber nafnið Gangster's Paradise og var keppandinn Nick alveg með það á hreinu hvað lagið héti.

Hann svaraði því laglega og sagði: „Gangsta's Paradise“ og fékk til að byrja með rétt fyrir það. Eftir að dómarar þáttarins höfðu rætt saman voru 3200 dollarar dregnir af honum, í því sem samsvarar rúmlega 330 þúsund krónur.

Hér að neðan má sjá þetta spaugilega atvik sem er eitt af því vinsælasta sem finnst á Reddit í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×