Innlent

Margrét Guðnadóttir fallin frá

Birgir Olgeirsson skrifar
Margrét varð fyrst kvenna prófessor við Háskóla Ísland árið1969 og gegndi því starfi í þrjátíu ár eða til ársins 1999.
Margrét varð fyrst kvenna prófessor við Háskóla Ísland árið1969 og gegndi því starfi í þrjátíu ár eða til ársins 1999.
Margrét Guðnadóttir veirufræðingur og prófessor lést þriðjudaginn 2. janúar síðastliðinn á Landspítalanum við Hringbraut, 88 ára að aldri.

Margrét, fædd árið 1929, varð fyrst kvenna, prófessor við Háskóla Ísland árið 1969 og gegndi því starfi í þrjátíu ár eða til ársins 1999.

Að læknisfræðinámi loknu starfaði Margrét við Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum, m.a. með Birni Sigurðssyni en síðar tók hún við starfi forstöðumanns Rannsóknarstofu Háskólans í Veirufræðum.

Eftir hana liggur fjöldi greina og rannsókna á sviði hæggengra veirusýkinga svo sem visnu og mæðiveiki í sauðfé en þær rannsóknir skiluðu niðurstöðum sem vöktu alþjóðlega eftirtekt vísindasamfélagsins. Margrét hlaut margar viðurkenningar fyrir störf sín og var sæmd  heiðursdoktorsnafnbót við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×