Ný lína frá Rodebjer hefur allt sem okkur vantar núna, sól, sumar og liti. Á köldum miðvikudegi verður að viðurkenna að við hlökkum til sumarsins, og þessi lína gefur okkur örlítið forskot.
Myndirnar voru teknar á hinum draumkennda Amalfi Coast í Ítalíu, sem gefur þessari línu mikla stemningu. Síðir kjólar, bæði rómantískir og aðeins stífari, sem munu sóma sér vel bæði á ströndinni og heima í bænum. Mikið er um falleg mynstur og körfutöskur sem verða án efa vinsælar í sumar.
Við látum okkur dreyma um betra veður og að komast aðeins úr þessum kulda, þessar myndir hjálpa mikið til.






