Innlent

Setja ætti 18 ára aldurstakmark á notkun flugelda

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sigurður Ásgrímsson yfirmaður séraðgerðasviðs og sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar segir að margt þurfi að varast þegar kemur að flugeldanotkun.
Sigurður Ásgrímsson yfirmaður séraðgerðasviðs og sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar segir að margt þurfi að varast þegar kemur að flugeldanotkun. Vísir/Vilhelm
„Það er margt sem þarf að varast,“ segir Sigurður Ásgrímsson, yfirmaður séraðgerðasviðs og sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar um flugeldanotkun hér á landi.

Í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag sagði Sigurður að margar ástæður séu að baki flugeldaslysum. Nefndi hann sem dæmi áfengisneyslu, ekki sé farið nákvæmlega eftir leiðbeiningum, gallaðar vörur, rakaskemmdir á flugeldum og fleira.  Einnig hafi orðið mjög alvarleg slys og dauðsföll þegar flugeldum er breytt á einhvern hátt áður en þeir eru sprengdir.

„Það er hægt að búa til mjög öflugar sprengjur úr þeim efnum sem eru í þessu.“

Hugsanlega gleymdist að taka hettu af kveiknum

Hann segir að hugsanlega hafi gleymst eitt mikilvægt skref þegar kveikt var í flugeldatertu sem sprakk á jörðu niðri í Vesturbænum um áramótin. Mikið mildi þykir að ekki hafi farið verr.

„Ég hef ekki skoðað þessa köku en það sem menn geta flaskað á til dæmis er að ef það er hetta yfir kveiknum sem á að taka af áður en þú kveikir í, ef þú tekur hana ekki af þá brennur þessi kveikur margfalt hraðar heldur en ef hettan er tekin af.“

Sjá einnig: Flugeldaterta sprakk á jörðu niðri í Vesturbænum 

Mildi þykir að ekki fór verr þegar flugeldaterta sprakk á jörðu niðri um áramótin.Samsett mynd
„Svo er alltaf spurning hvort að setja eigi einhver aldurstakmörk,“ segir Sigurður en hann telur að miða eigi þá við 18 ára aldur þegar kemur að notkun flugelda. Yngri en það ættu þá „alls ekki“ að sprengja flugelda.

Skrítið að aðilar láti ekki eyða útrunnum flugeldum

Flugeldaslys verða hér á landi á hverju ári og leituðu fimm manns á bráðadeild Landspítalans vegna flugeldaslysa á Nýársnótt sem eru nokkuð færri tilfelli en á síðasta ári. Í gær slösuðust einnig ungmenni á Esjunni vegna flugelda. 

Sigurður segir að Landsbjörg sé eini söluaðili flugelda á Íslandi sem fái sprengjudeildina til að eyða fyrir sig útrunnum flugeldum. Hann vildi þó ekki halda því fram að aðrir aðilar væru að selja útrunnar vörur.

„Ég get ekki staðfest það en kannski eyða þeir þessu sjálfir, ég veit það ekki en við höfum verið að ræða þetta okkar á milli. Okkur finnst þetta mjög skrítið.“


Tengdar fréttir

Mengunin skaðlegri en í eldgosi

Svifryk á höfuðborgarsvæðinu var meira skömmu eftir miðnætti á nýársdag en þegar Eyjafjallajökull gaus. Fimmtán manns hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna andþyngsla og súrefnislækkunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×