Fótbolti

Diego Costa ekki lengi að skora í fyrsta leiknum með Atletico Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Costa fagnar marki sínu.
Diego Costa fagnar marki sínu. Vísir/EPA
Diego Costa var ekki lengi að opna markareikninginn sinn hjá Atletico Madrid þegar hann kom inná sem varamaður í bikarleik á Spáni í kvöld.

Atletico Madrid mætti þá b-deildarliðinu Lleida Esportiu í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænska konungsbikarsins og vann öruggan 4-0 sigur.

Atletico Madrid var komið í 2-0 þegar Diego Costa kom inná sem varamaður á 65. mínútu leiksins.

Eftir aðeins fimm mínútur var Diego Costa búinn að koma Atletico í 3-0 en þetta var fyrsti leikur hans fyrir Atletico síðan að hann fór til Chelsea árið 2014.

Diego Costa lenti í útistöðum við Antonio Conte, knattspyrnustjóra Chelsea, í sumar og spilaði ekkert með liðinu. Hann fór síðan til Atletico í september en mátti ekki byrja að spila með liðinu fyrr en að glugginn opnaði aftur 1. janúar 2018.

Diego Godín og Fernando Torres komu Atletico í 2-0 í fyrri hálfleik og Antoine Griezmann innsiglaði síðan 4-0 sigur í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×