Glamour

Besta dæmið um hringrás tískunnar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Gallabuxur eiga sér langa sögu og voru fyrst notaðar sem vinnufatnaður. Efnið þótti slitsterkt og ódýrt, en upphaf þeirra má rekja til gullgrafara í Ameríku sem báðu klæðskerann Levi Strauss að sauma á sig sterkar buxur. Levi Strauss varð fyrstur til að fjöldaframleiða gallabuxur, og fékk einkaleyfi á framleiðslu sinni árið 1873. 

Gallabuxur urðu hins vegar vinsælar sem tískufatnaður fyrst í kringum 1950, því unga fólkið var orðið nýr markhópur tískunnar. Áhrifin voru einnig mikil frá James Dean í myndinni Rebel Without a Cause. Hins vegar voru misjafnar skoðanir á gallabuxum og þóttu þær ekki nógu fínn klæðnaður, og voru meðal annars bannaðar í skólum og á veitingastöðum. En með æskunni fylgir sterkur vilji til frelsis og uppreisnin varð mikil á þessum tíma. Unglingarnir vildu slíta sig frá eldra fólkinu, og alls ekki líta út eins og þau.

Með árunum fylgdu gallabuxur hverri kynslóð. Þeir sem dýrkuðu Rock and Roll, Elvis Presley og Marlon Brando klæddust svörtum gallabuxum, leðurjökkum og stuttermabolum. Tískan hefur frá þessum tíma haft fyrirmyndir, og voru fyrirsætur en aðallega tónlistarfólk sem setti stóran svip á tísku hvers tíma. Eins og við sjáum á þessari tímalínu, hafa hverjar stórstjörnurnar og tískufyrirmyndirnar á fætur annarri klæðst gallabuxum. 

Hátt mitti, lágt mitti, útvíðar, beinar eða niðurþröngar. Útlit gallabuxna hefur breyst mikið í gegnum árin, en þó eru þær gott dæmi um hringrás tískunnar.  Gallabuxur hafa aldrei horfið af sjónarsviðinu, og standast tímans tönn og aðlagast tísku hvers tímabils. Gallabuxur eru taldar hafa verið hið bláa uppreisnartákn ´68-kynslóðarinnar´, en eru nú þægileg og klassísk flík sem væntanlega er til í all mörgum fataskápum, bæði karla og kvenna.



Aftur í þær ,,klassísku"

Það má segja að í dag erum við farin aðeins aftur í tímann þegar kemur að gallabuxum. Þröngu og teygjanlegu gallabuxurnar eru minna áberandi, en hinar klassísku, uppháu og beinu buxur eru að koma sterkar inn. Þetta snið hentar öllum og ganga þær bæði upp við strigaskó og ökklastígvél. Hins vegar verður að gefa þessum gallabuxum smá þolinmæði, því þær eru óþægilegar fyrst en verða bara flottari með tímanum.

Sjáðu hér skemmtilegt myndaalbúm með gallabuxum í gegnum tíðina.

Marilyn Monroe árið 1960
Árið 1969
Jane Birkin árið 1973
Árið 1980
Drew Barrymore árið 1988
Díana prinsessa árið 1988
Árið 1989
Pamela Anderson árið 1990
Tori Spelling árið 1991
Drew Barrymore árið 1991
Naomi Campbell árið 1993
Destiny's Child árið 1998
Kate Moss árið 2005
Jennifer Aniston árið 2009
Sienna Miller árið 2009
Kristen Stewart árið 2014
Jeanne Damas árið 2016





×