Handbolti

Aron ekki með í síðasta leik fyrir Evrópumótið

Magnús Ellert Bjarnason skrifar
Aron í vináttuleik gegn Japan.
Aron í vináttuleik gegn Japan. Vísir
Aron Pálmarsson verður ekki í leikmannahóp Íslands sem mætir Þýskalandi í dag kl 13:00.

Leikurinn, sem leikinn er í þýsku borginni Ulm, er síðasti vináttuleikur liðsins fyrir Evrópumótið í handbolta sem hefst í Króatíu á föstudag.

Í tilkynningu frá HSÍ segir að Aron verði hvíldur í leiknum í dag vegna smávægilegra meiðsla.

Að öðru leyti er hópurinn sá sami og laut í lægra haldi gegn þýska landsliðinu síðastliðinn föstudag, 36-29.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×