Innlent

Á von á strangari reglum um hagsmunaskráningu

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir hefur skipað starfshóp sem ætlað er að koma með úrlausnir á traustvanda stjórnmálastéttarinnar.
Katrín Jakobsdóttir hefur skipað starfshóp sem ætlað er að koma með úrlausnir á traustvanda stjórnmálastéttarinnar. Vísir/Hanna
Allt frá því í bankahruninu 2008 hefur traust almennings á stjórnmálamönnum og ýmsum stofnunum verið í lágmarki. Meðal annars hefur traust almennings gagnvart Alþingi mælst á bilinu 18 til 24 prósent frá febrúar 2009 til dagsins í dag samkvæmt traustmælingum Gallup.

Stjórnmálamönnum hefur verið tíðrætt að mæta þessu vantrausti með bættum vinnubrögðum og öðrum lausnum en nú hefur Katrín Jakobsdóttir, Forsætisráðherra, skipað starfshóp sem ætlað er að koma með úrlausnir á þessum traustvanda stjórnmálastéttarinnar.

Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki, hefur verið skipaður formaður nefndarinnar og er henni ætlað að skila tillögum í 

Starf nefndarinnar mun verða víðfeðmt og Katrín reiknar með að nefndin skili fjölbreyttum tillögum.

„Nú setjum við fyrst almennar siðareglur og reglur um hagsmunaskráningu eftir hrun hér á landi og erum nokkuð sein til í alþjóðlegu samhengi,“ segir Katrín. „Ég á von á því að það verði gerðar kröfur um strangari reglur í þeim efnum. Ekki síst hvað varðar hagsmunaskráningu.“

Þá reiknar hún með því að fram muni koma breytingar á lögum er varða umgjörð stjórnsýslunnar. 

„Í því samhengi hefur til dæmis verið talað um vernd uppljóstrara og þagnarskyldu starfsmanna stjórnarráðsins sem er eitthvað sem ég vænti þess að sé eitthvað sem þessi nefnd fari yfir.“

Skref í rétta átt en enn skortir pólitíska ábyrgð
Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þingmaður Pírata segir hópinn skref í rétta átt og fagnar tilkomu hans. Hinsvegar telur hann fleiri þætti mikilvæga til að auka tiltrú almennings á stjórnmálamönnum og telur þörf á að stjórnmálamenn axli pólitíska ábyrgð í auknu mæli og vísar hann til dæmis til Sigríðar Á Andersen, dómsmálaráðherra, sem sætt hefur gagnrýni vegna málefna Landsréttar.

„Það er ótrúlega gott að það sé verið að gera eitthvað í því gífurlega vantrausti sem hefur ríkt í garð stjórnmálanna í nokkurn tíma,“ segir hann. „Þetta er skref í rétta átt en það eru nokkur augljós skref sem hægt væri að taka strax. Það eru til dæmis spurningar um pólitíska ábyrgð sem hefur ekki almennilega fest sig í sessi í okkar pólitísku menningu. Fólk verður að bera ábyrgð á sínum stjórnarathöfnum og verður að bregðast við þegar það gerir eitthvað á skjön við lög til dæmis.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×