Glamour

„Við sjáum ykkur, við heyrum í ykkur og við munum segja ykkar sögur“

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Sjónvarpsþáttaröðin Big Little Lies var valin besta sjónvarpssería ársins á Golden Globes verðlaununum í ár en serían sló heldur betur í gegn á árinu. Alls vann serían 4 verðlaun á hátíðinni. 

Reese Witherspoon, sem ekki bara lék eitt af aðalhlutverkunum í þáttunum heldur er hún líka einn framleiðanda ásamt Nicole Kidman, þakkaði fyrir sig og sitt fólk með eftirminnilegum hætti á sviðinu þar sem hún tileiknaði verðlaunin til þeirra sem hafa haft hátt og rofið þögnina. 

„Ég þakka öllum þeim sem stóðu upp á þessu ári og rufu þögnina um áreitni og ofbeldi. Þið eruð svo hugrökk. Og vonandi verða fleira sjónvarpsefni í þessum anda gert,því það eru ennþá fullt af fólki þarna úti sem upplifir þöggun vegna áreitni, ofbeldi og misrétti. Tíminn er liðinn, við sjáum ykkur og við heyrum í ykkur, og við munum segja ykkar sögur.“

Hægt er að sjá þakkarræðuna í heild sinni neðst í fréttinni. 

Aðalleikkonur þáttana.





×