Sport

Gunnar Nelson vill mæta Ponzinibbio aftur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gunnar veit ekki hvenær hann keppir næst
Gunnar veit ekki hvenær hann keppir næst vísir/getty
Gunnar Nelson sagði Ariel Helwani, stjórnanda The MMA Hour, að amma sín hafi borðað kássu úr lambaheilum í viðtali í þættinum í dag.

Helwani spurði Gunnar út í lífið á Íslandi og var forvitin um svið og hvernig þau væru framreidd, því næsta markmið hans sé að fá sér sviðakjamma með Haraldi Nelson, föður Gunnars.

Hann var mjög hissa á því að það væri hægt að fara á stoppistöð strætó og biðja um svið og kók, og talið barst að heilum þegar Gunnar talaði um að hausarnir væru alltaf sagaðir í sundur. Gunnar sagðist ekki hafa smakkað þá sjálfur, en eldri kynslóðir hefðu gert það, þar á meðal amma hans.

Þeir félagar ræddu þó líka bardagamál og sagði Gunnar að sá bardagi sem hann væri mest til í að fá væri endurtekin viðureign hans og Santiago Ponzinibbio, en sá síðarnefndi varð fyrstur til að vinna Gunnar með rothöggi þegar þeir áttust við í síðasta sumar.

„Ég væri klárlega til í að berjast við hann aftur. Ég væri til í að fá aðra tilraun og ég mun passa augun. Ég held ég myndi vinna hann ef við mætumst aftur,“ sagði Gunnar, en Ponzinibbio náði rothögginu á Gunnar eftir að hafa potað í augun á honum.

„Eftir bardagann getur þú sagt allt sem þú vilt, ég hefði átt að rétta upp hönd og láta dómarann vita af þessu því það er ekki eðlilegt að sjá tvöfalt. En á meðan bardaganum stóð þá hugsaði ég bara að kannski gerir hann ekki neitt. Hann vissi að ég var hálfblindur og hann gæti kýlt mig á meðan ég væri að rétta upp hönd svo ég tók ekki áhættuna.“

„Dómarinn segir þér að vera ekkert að stöðva bardagann því hann er að fylgjast með. Ég hélt ég myndi jafna mig. En eftir bardagann var ég mjög vonsvikinn því mér fannst ég hafa verið í besta formi ferilsins,“ sagði Gunnar.

Teymi Gunnars ákvað að áfrýja niðurstöðu bardagans, en þeir töpuðu áfrýuninni. Það er mjög sjaldgæft í bardagaheiminum að slíkar áfrýjanir beri ávöxt.

„Ég vildi ekki gera það til að byrja með, það myndi ekki breyta því sem gerðist. En ég skil að þetta gæti breytt einhverju fyrir íþróttina. Fyrir þann næsta sem lendir í þessu, þá vil ég segja að þetta ætti ekki að gerast. Þetta er svindl, eins mikið svindl og hægt er.“

„Eftir að hafa horft á upptökur af bardaganum, þá sýna þær að þetta var viljaverk. Þú potar ekki fjórum sinnum í augun á einhverjum nema það sé viljandi. Eftir bardagan vildi ég ekki trúa því að þetta væri viljandi.“

Gunnar tók sér hlé að læknisráði eftir bardagann til þess að jafna sig á rothögginu. Hann er enn ekki með neinn bardaga bókaðan, en er byrjaður að æfa á nýju.

Viðtalið við Gunnar í MMA Hour má sjá hér.

MMA

Tengdar fréttir

Till er ekkert að hugsa um Gunnar Nelson

Englendingurinn Darren Till var í spjalli við Ariel Helwani í The MMA Hour um hvað hann vill gera næst á ferlinum. Hann minntist ekki einu orði á Gunnar Nelson þó svo hann hafi sagt á dögunum að hann væri klár í að mæta okkar manni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×