Sport

Rugby leikmaður lést aðeins 23 ára gamall

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ottio, til hægri, í leik fyrir þjóð sína
Ottio, til hægri, í leik fyrir þjóð sína vísir/getty
Leikmaður enska rugby liðsins Widnes Vikings, Kato Ottio, lést í gær aðeins 23 ára að aldri.

Ottio var frá Papua Nýju Guineu og hafði gengið til liðs við Widnes í desember, en hafði þó ekki mætt til æfinga hjá félaginu þar sem tímabilið byrjar ekki fyrr en í febrúar.

„Skyndilegt heilsuvandamál“ sem kom upp á æfingu hjá Ottio er sagt hafa leitt til dauða hans.

„Kato var ótrúlega hæfileikaríkur leikmaður sem átti bjarta framtíð,“ sagði James Rule, stjórnarmaður Widnes.

Ottio átti að baki sex landsleiki fyrir þjóð sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×