Körfubolti

Körfuboltakvöld: Fannar lætur Jón Arnór heyra það

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fannar Ólafsson gefur engan afslátt.
Fannar Ólafsson gefur engan afslátt.
Þegar veðrið er vont er ekki ónýtt að geta kíkt á tvöfaldan skammt af Fannar skammar úr Dominos körfuboltakvöldi.

Í þætti gærkvöldsins fékk meðal annars sjálfur Jón Arnór Stefánsson að heyra það frá Fannari Ólafssyni.

„Nárinn á honum er gróinn svo fastur að hann getur ekki hreyft sig,“ sagði Fannar er hann lét Jón heyra það.

„Þegar 19 ára pungur, sem er varla kominn með hár á ákveðna staði, setur í grillið á Jóni og lætur hann heyra það og eina sem Jón gerir er að haltra þá fær hann skammarverðlaun mánaðarins. Hann á að vinna þetta.“

Jens Valgeirsson fékk svo Fannar skammar verðlaunin fyrir desember-mánuð. Báðar klippur má sjá hér að neðan.

Fannar skammar fyrir desembermánuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×