Fótbolti

Davíð Snorri ráðinn til KSÍ: Alltaf verið markmið að geta einbeitt mér að fullu að knattspyrnuþjálfun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Davíð Snorri Jónasson.
Davíð Snorri Jónasson. Vísir/Andri Marinó
Davíð Snorri Jónasson hefur tekið við sem þjálfari sautján ára landsliðs karla í fótbolta.  Davíð mun jafnframt sjá um þjálfun sextán ára karla og verður aðstoðarþjálfari nítján ára landsliðs karla og hefur hann þegar hafið störf.

Knattspyrnusambandið segir frá þessu á heimasíðu sinni í dag en Davíð Snorri er hættur sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deild karla.

Davíð hefur unnið í kringum knattspyrnu lengi, þjálfað yngri flokka hjá Leikni Reykjavík og Stjörnunni ásamt því að vera þjálfari meistaraflokks karla hjá Leikni Reykjavík og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Stjörnunni.

„Tilfinningin er mjög góð. Þetta er spennandi verkefni í krefjandi umhverfi sem ég hlakka til að takast á við,“ sagði Davíð Snorri í fréttinni á heimasíðu KSÍ. Hann hefur þegar hafið störf hjá KSÍ og er um að ræða fullt starf sem er skiljanlega töluverð breyting frá því að þjálfa félagslið:

„Ég mun geta einbeitt mér að fullu að knattspyrnuþjálfun sem hefur alltaf verið markmið hjá mér. Mesta breytingin er að fara af æfingavellinum alla daga og vinna með afmarkaðan hóp eins og maður gerir hjá félagsliði. Í starfi mínu sem landsliðsþjálfari mun ég vera í miklum samskiptum við félögin og fylgjast með þeim aldursflokkum sem tilheyra yngri landsliðunum,“ sagði Davíð Snorri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×