Erlent

Háttsettir ráðherrar í Póllandi reknir

Atli Ísleifsson skrifar
Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, eiga fund með Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Frank Timmermans, einum varaforseta framkvæmdastjórnarinnar, í Brussel í dag.
Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, eiga fund með Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Frank Timmermans, einum varaforseta framkvæmdastjórnarinnar, í Brussel í dag. Vísir/AFP
Þrír háttsettir ráðherrar í ríkisstjórn Póllands hafa verið reknir. Andrzej Duda forseti rak í dag, eftir ráðleggingar frá Mateusz Morawiecki forsætisráðherra, utanríkisráðherrann Witold Waszczykowski, varnarmálaráðherrann Antoni Macierewicz og umhverfisráðherrann Jan Szyszko.

Fréttaskýrendur segja að með þessu vilji Póllandsstjórn lægja öldur í samskiptum pólskra stjórnvalda og Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn ESB hefur veitt Póllandsstjórn áminningu vegna fyrirhugaðra lagabreytinga sem myndu auka afskipti stjórnmálamanna að skipun dómara í landinu. ESB telur að breytingarnar stríði gegn grundvallargildum sambandsins.

Breytingarnar eru einnig gerðar á sama tíma og ESB hefur vinnu við nýja sjö ára fjármálaáætlun þar sem línur verða lagðar hvað aðildarríkin munu fá úr sameiginlegum sjóðum sambandsins. Pólland er sem stendur það aðildarríki sem þiggur mestu styrkina umfram það sem þeir leggja til sambandsins, að því er fram kemur í frétt Reuters.

Deilt um frumskóg

Umhverfisráðherrann Szyszko hefur sætt mikilli gagnrýni að undanförnu eftir að hann heimilaði umfangsmikið skógarhögg í Białowieża-frumskóginum, einum síðasta frumskógi Evrópu. Białowieża-skógurinn er á heimsminjaskrá UNESCO, er syðst í Póllandi og teygir sig inn fyrir landamæri Hvíta-Rússlands.

Varnarmálaráðherrann fyrrverandi, Macierewicz, hefur verið gagnrýndur vegna tafa við uppbyggingu pólska hersins, auk þess að hann hefur átt í útistöðum við hershöfðingja.

Tók við embætti í desember

Morawiecki tók við sem forsætisráðherra Póllands í síðasta mánuði af Beata Szydlo. Hann hafði áður gegnt embætti fjármálaráðherra.

Morawiecki mun eiga fund með Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Frank Timmermans, einum varaforseta framkvæmdastjórnarinnar, í Brussel í dag.

Aðstoðarutanríkisráðherrann Jacek Czaputowicz er nýr utanríkisráðherra landsins.


Tengdar fréttir

Pólverjar fá sögulega áminningu frá ESB

Framkvæmdastjórn ESB áminnti í dag Pólverja fyrir að brjóta gegn grunngildum sambandsins um lýðræði vegna lagafrumvarps sem gengur út á að auka afskipti stjórnmálamanna að skipun dómara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×