Lífið

Gaman enn sem komið er

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Til að byrja með hélt ég reyndar að brennurnar og flugeldarnir og lætin öll væru út af mér,“ segir Guðmundur Andri sem á afmæli í dag.
„Til að byrja með hélt ég reyndar að brennurnar og flugeldarnir og lætin öll væru út af mér,“ segir Guðmundur Andri sem á afmæli í dag. Vísir/Eyþór Árnason
Þegar hringt er í Guðmund Andra Thorsson, rithöfund og nýbakaðan þingmann, hittist þannig á að hann er í fundahléi á hinu háa Alþingi. „Það var að ljúka fundi hér í allsherjar-og menntamálanefnd sem ég sit í og svo er þingfundur núna á eftir,“ segir hann og býst greinilega við einhverjum gáfulegum spurningum frá blaðamanni um landsins gagn og nauðsynjar en fær í staðinn þessa:

Hvernig er að eiga afmæli á gamlársdag? „Ja – ég þekki svo sem ekkert annað,“ svarar hann.  „En ég væri alveg til í að eiga afmæli í maí.“

Meinarðu svo að þú gætir farið út í fótbolta eftir súkkulaðidrykkjuna og köku­átið? „Já, eða að það hefði einhver getað komið í afmælið manns þegar maður var lítill. Það var oft mikið vesen fyrir mömmu að fá einhvern til að mæta en hún var að reyna að halda upp á afmælið milli klukkan þrjú og fimm á gamlársdag. Var sjálf fréttastjóri á ríkisútvarpinu og mátti auðvitað ekkert vera að þessu en eitthvað varð að gera.

Til að byrja með hélt ég reyndar að brennurnar og flugeldarnir og lætin öll væru út af mér. Það var dálítið góð tilfinning en þeim mun alvarlegra varð náttúrlega áfallið þegar ég áttaði mig á að svo var ekki. – Nei, nei. Þetta er bara afmælisdagurinn minn. Ég held að það sé enn verra að eiga afmæli á jólunum.“

En það verður margheilagt hjá þér núna. Þú fagnar nýju aldursári og nýjum tug, fyrir utan nýtt almanaksár eins og allir aðrir. Verður veisla? „Nei, nei. Ég ætla bara að vera að heiman. Við höfum yfirleitt verið saman um áramótin, ég og bróðir minn og fjölskyldur okkar. Svo ætlum við konan mín að halda upp á sextugsafmælin okkar þegar aðeins er liðið á árið.“

En er einhver tími fyrir stuð nú þegar þú ert orðinn þingmaður? Nei, nei, það er enginn tími fyrir veislur, maður er bara í stífri vinnu, aðallega stífu læri.“

Kanntu vel við þennan nýja starfsvettvang? „Já, þetta er spennandi starf og allt öðru vísi en annað sem ég hef fengist við. Ég er sem sagt bara að læra og það er gaman enn sem komið er.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×