Sport

Holly Holm tókst ekki að endurtaka leikinn gegn Cyborg

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Cyborg átti góða frammistöðu í nótt.
Cyborg átti góða frammistöðu í nótt. Vísir/Getty
UFC 219 fór fram í nótt í Las Vegas. Í aðalbardaga kvöldsins mættust þær Cris ‘Cyborg’ Justino og Holly Holm um fjaðurvigtartitil kvenna.

Holly Holm náði ekki að gera það sama við Cyborg líkt og hún gerði við Rondu Rousey á sínum tíma. Cris Cyborg sigraði bardaga þeirra eftir fimm lotu dómaraákvörðun.

Bardaginn var nokkuð jafn og spennandi en þetta var fyrsta titilvörn Cyborg í UFC. Holm náði nokkrum góðum gagnhöggum í Cyborg til að byrja með en sú brasilíska stóð allt af sér. Cyborg bætti í sóknina þegar leið á bardagann og fór að lesa betur í hreyfingar Holm.

Holm reyndi nokkrum sinnum að ná hásparki líkt og hún gerði gegn Rousey en alltaf var Cyborg viðbúin. Að mati tveggja dómara sigraði Cyborg þrjár af fimm lotum en einn dómarinn gaf Cyborg fjórar lotur. Þetta var í fyrsta sinn sem Cyborg fer fimm lotur á ferlinum og í fyrsta sinn síðan 2008 sem henni tekst ekki að klára andstæðinginn sinn.

Khabib Nurmagomedov átti magnaði endurkomu og valtaði hreinlega yfir Edson Barboza. Bardaginn var afar fjörugur og þótt Barboza hafi byrjað vel virtist Khabib aldrei vera í hættu. Khabib tók Barboza niður í öllum lotum og stjórnaði honum vel í gólfinu. Frábær frammistaða þeim rússneska í kvöld og verður gaman að sjá hvað hann gerir á næsta ári ef hann helst heill.

Síðasta bardagakvöld UFC á árinu var ágætis skemmtun þó margir bardagar hafi farið allar loturnar. Öll önnur úrslit kvöldsins má sjá á vef MMA Frétta hér.

MMA

Tengdar fréttir

Loksins berst Khabib aftur

Einn besti léttvigtarmaður heims, Khabib Nurmagomedov, snýr loksins aftur í búrið í nótt á UFC 219. Khabib mætir þá Edson Barboza í einum mest spennandi bardaga kvöldsins.

Khabib: Það á að taka beltið af Conor

Það er meira en ár síðan Conor McGregor varð léttvigtarmeistari hjá UFC og það liggur ekki enn fyrir hvenær hann ætlar að verja beltið sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×