Enski boltinn

Young og Naughton á leiðinni í bann

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ashley Young hefur verið hjá United síðan 2011
Ashley Young hefur verið hjá United síðan 2011 vísir/getty
Enska knattspyrnusambandið hefur ákært Ashley Young fyrir ofbeldisfulla hegðun í leik Manchester United og Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Young virtist hafa gefið Dusan Tadic olnbogaskot í leiknum, dómararnir sáu atvikið ekki en það náðist á upptökur af leiknum og hefur nú verið tekið fyrir af knattspyrnusambandinu.

Kyle Naughton er einnig ákærður fyrir að hafa stigið á Stefano Okaka í sigri Swansea á Watford.

Báðir leikmenn hafa til klukkan 5 í dag til að svara fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×