Enski boltinn

Jesus frá í allt að tvo mánuði

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gabriel Jesus meiddist snemma leiks í dag
Gabriel Jesus meiddist snemma leiks í dag vísir/getty
Gabriel Jesus verður frá keppni í einn til tvo mánuði, en hann meiddist á hné í leik Crystal Palace og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Jesus fór af velli í fyrri hálfleik með tárin í augunum. Hann meiddist á 11. mínútu leiksins en reyndi að halda áfram leik. Þegar hann átti skot á markið tíu mínútum seinna féll hann þó aftur í grasið og gat ekki haldið áfram.

Brasilíumaðurinn ungi hefur skorað 8 mörk í 16 leikjum fyrir City á tímabilinu í úrvalsdeildinni og tvö mörk í sex leikjum í Meistaradeild Evrópu.

Belginn Kevin de Bruyne meiddist einnig í leiknum og er búist við því að hann muni líka verða frá í einhvern tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×