Enski boltinn

Wenger: Dómarinn sá ekki atvikið

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Wenger var ekki sáttur í leikslok
Wenger var ekki sáttur í leikslok vísir/getty
Arsene Wenger segir Mike Dean, dómara leiks Arsenal og WBA í ensku úrvalsdeildinni í dag, ekki hafa séð atvikið sem hann dæmdi vítaspyrnu á undir lok leiksins.

West Brom jafnaði metinn á loka mínútum leiksins eftir að Dean dæmdi vítaspyrnu þegar boltinn fór í hendina á Calum Chambers. Chambers fékk boltann í hendina, það er óneitanlegt, en það var af mjög stuttu færi og hann virtist halda hendinni eins nálægt líkama sínum og hann gat.

„Ástæðan fyrir því að ég set spurningamerki við dóminn er að hann sá þetta ekki. Það var leikmaður fyrir framan hann,“ sagði Wenger eftir leikinn.

„Fyrir mörgum árum þá börðumst við Mike Dean fyrir því að dómarar yrðu atvinnumenn og þeir standa sig vel, en vinna ekki nógu mikið. Við börðumst í þessum leik en unnum ekki vegna slæmrar ákvarðanar,“ sagði Arsene Wenger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×