Innlent

Fá kynningu á samningi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Verkfalli flugvirkja er lokið.
Verkfalli flugvirkja er lokið. vísir/vilhelm
Flugvirkjar fá í kvöld kynningu á nýjum kjarasamningi við Icelandair sem undirritaður var í fyrrinótt. Samningurinn verður kynntur á félagsfundi þar sem jafnframt verður útskýrt hvernig staðið verður að atkvæðagreiðslu um samninginn.

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélagsins, segir að atkvæðagreiðslan fari fram rafrænt en ekki sé búið að tímasetja hana. Hann segist sáttur við niðurstöðuna. „Við getum orðað það þannig að ég tel þess virði að skrifa undir hann og bera hann undir félagsmenn.“ Óskar segir að tekist hafi að ná fram hækkun á grunnkaupi. „Það eru kjarabætur í honum eins gerist og gengur í kjarasamningnum,“ segir Óskar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×