Körfubolti

Isiah grét er Magic bað hann afsökunar | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Isiah grætur hér á öxl Magic sem sjálfur kemst við. Ótrúleg stund.
Isiah grætur hér á öxl Magic sem sjálfur kemst við. Ótrúleg stund.
Það voru sögulegar sættir á milli goðsagnanna Magic Johnson og Isiah Thomas í þætti á NBA TV í gær.

Þeir félagar börðust hatrammlega í NBA-deildinni á sínum tíma og mættust í úrslitarimmu deildarinnar tvö ár í röð. Magic kunni ekki að meta leikstíl Isiah og félaga hans í Detroit Pistons enda voru þeir harðir í horn að taka.

Þeir eiga sér langa sögu og var kalt á milli þeirra lengi. Isiah hefur ekkert viljað hafa með Magic og ekki síst eftir að Magic viðurkenndi að hafa beitt sér fyrir því að Isiah yrði ekki valinn í upprunalega Draumaliðið árið 1992.

Nú eru þeir aftur á móti orðnir fullorðnir menn og það var NBA-deildin sem dró þá saman aftur í þætti sem eflaust hreyfði við mörgum.

„Þú ert bróðir minn og ég bið þig um að fyrirgefa mér ef ég særði þig og að við höfum ekki átt samleið. Guð er svo góður að leiða okkur saman aftur,“ sagði auðmjúkur Magic og er Isiah heyrði þessi orð koma frá Magic þá brast stíflan og hann felld tár. Magic faðmaði hann og hélt áfram að tala fallega við sinn gamla óvin á meðan hann grét á öxl hans.

Ótrúleg stund sem má sjá hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×