Handbolti

Öruggur sigur hjá Stefáni Rafni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Stefán Rafn fagnar í leik með Pick Szeged.
Stefán Rafn fagnar í leik með Pick Szeged.
Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Pick Szeged unnu öruggan sigur á liði Csurgoi í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af, en heimamenn í Szeged voru þó alltaf skrefinu á undan og leiddu 16-13 í hálfleik.

Þeir settu svo í annan gír í byrjun seinni hálfleiks og kláruðu leikinn. Að lokum fór svo að Pick sigraði leikinn með átta mörkum, 32-24.

Pick Szeged situr í öðru sæti ungversku deildarinnar, tveimur stigum á eftir Veszprém sem á þó tvo leiki til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×