Draumur á jólanótt 21. desember 2017 10:45 Starfsfólk Betra baks er þrautreynt í því að liðsinna viðskiptavinum við kaup á réttri dýnu. Frá vinstri: Elvar Freyr, Hafdís Hrönn, Herdís og Teitur. MYND/STEFÁN
Unaðslegur nætursvefn er tryggður á jólanótt með rúmfötum, kodda eða sæng frá Betra baki, og undurgott að stíga úthvíldur fram úr í hlýjan náttslopp og heilsuinniskó á jóladagsmorgun; vitandi að jólasælan er rétt að byrja. „Sængurfatnaður er hlýleg jólagjöf og undurgott að sofna á jólanótt með nýja sæng. Maður finnur svo góðan mun og sanna sælu,“ segir Hafdís Hrönn Reynisdóttir, verslunarstjóri í Betra baki, þar sem stemningin er einkar jólaleg nú síðustu dagana fyrir jól, enda verið að velja notalegan varning í jólapakkana fyrir náðugustu stundir heimilislífsins.Það er einstök tilfinning að leggjast til hvílu í nýjum og hreinum rúmfötum. Þessi grátóna rúmföt frá Calvin Klein eru straufrí, silkimjúk og yndisleg.„Sumir halda ekki einu sinni jól nema með nýju laki frá okkur,“ segir Hafdís og handfjatlar silkimjúkt bómullarteygjulak frá Bella Donna sem faðmar dýnuna að sér og er blandað með aloe vera-geli sem gerir lakið einstaklega mjúkt viðkomu. „Lökin eru algjört undur og hreinasti lúxus. Við steinhættum að bjóða upp á önnur lök því að viðskiptavinirnir vildu ekkert nema Bella Donna. Búið er að forþvo lökin sem er mikill kostur fyrir jólin, að geta sett þau beint á rúmin. Þá lofa rúmfötin okkar dásamlegri slökun og nætursvefni, auk þess að vera mikið augnayndi og straufrí úr silki og egypskri bómull frá Boss, Calvin Klein, Kenzo og Elegante,“ segir Hafdís og náttslopparnir frá Boss og Calvin Klein hitta líka alla í hjartastað.Sófasett og hvers kyns húsbúnaður fæst í Betra baki.MYND/STEFÁNÞriðjungur ævinnar í rúminuBetra bak er rómuð verslun fyrir undursamleg rúm en margir verða hissa þegar þeir finna þar breiða línu húsgagna og hvers kyns húsbúnað fyrir heimilið. „Við erum með gullfalleg teppi, ómótstæðileg jólailmkerti frá Ralph Lauren, æðislega hægindastóla og yndislega mjúk og falleg rúmteppi í bland við undurfagra rúmgafla, náttborð og sófasett,“ segir Hafdís og rétt tæpir á úrvalinu. „Við erum með dýrindis gormadýnur og Tempur-dýnur í öllum verðflokkum, stillanleg og venjuleg rúm, og úrval rúmgafla sem hægt er að velja í stíl við heimilið. Allt sendum við svo heim og gerum tilbúið,“ segir Hafdís sem í Betra baki er með allt fyrir svefnherbergið.Dýrindis gormadýnur og Tempur-dýnur fást í öllum verðflokkum.MYND/STEFÁN„Æ fleiri átta sig á því að þeir verja einum þriðja ævi sinnar í rúminu og að gott rúm skilar sér ávallt í bættri heilsu og betri svefni. Að velja sér nýtt rúm er þó ekki daglegt brauð og við leggjum áherslu á að fólk njóti ánægjulegrar upplifunar við val á rúmi,“ segir Hafdís sem leiðbeinir viðskiptavinum við að finna dýnur sem henta líkama þeirra best þegar kemur að styrkleika og mýkt. „Fyrir jólin er vinsælt hjá pörum að velja sér veglegri hluti í sameiginlega og rómantíska jólagjöf, og mörg hjón hafa komið og keypt sér nýtt rúm til að sofa vel í og hafa það yndislegt saman um jólin,“ segir Hafdís.Sængurföt og jólailmur frá Ralph Lauren eru vel þegnar jólagjafir.MYND/STEFÁNFullkomin gjöfHeilsuinniskórnir Undri slógu í gegn hjá Betra baki um síðustu jól og seldust upp fyrir hátíðarnar. Voru gefin út hundruð korta fram að jólum á meðan beðið var eftir nýrri sendingu sem barst á milli jóla og nýárs, en Hafdís pantaði þrefalt magn af Undra fyrir komandi jól. „Undri er hin fullkomna jólagjöf,“ segir Hafdís. „Skórnir draga úr spennu, örva blóðflæði og veita örvun frá mjöðmum upp í höfuð með fimm svæða innleggi sem þrýstir undir ilina og líkir eftir kínversku nuddi í gegnum fimm taugapunkta á ilinni,“ útskýrir Hafdís um Undra sem er íslensk hönnun með nuddinnleggi frá virtum, þýskum framleiðanda. „Við völdum nafnið á skóna, útlitið og efnið, sem er merinóull, og unnum skóna í samstarfi við stoðtækjafræðing svo að vellíðan og slökun yrði alger.“Heilsuinniskórnir Undri lofa slökun og vellíðan með fimm svæða nuddinnleggi.MYNDtSTEFÁNSívinsæl jólagjöf úr Betra baki er Tempur-koddi sem lagar sig að hita og þyngd þess sem á honum hvílir. „Tempur aðlagast öxlum og hálsi og heldur hryggsúlunni í beinni línu með óskertu blóðflæði. Þeir sem einu sinni eignast Tempur-kodda vilja ekki annað enda fæst ekki jafn góður stuðningur í neinum öðrum koddum,“ segir Hafdís. Sængurnar í Betra baki rjúka líka út í jólapakkana. Vinsælustu sængurnar eru hitajöfnunarsængin Temprakon og sæng úr 100 prósent gæsadún. „Temprakon nýtur verðskuldaðra vinsælda enda heldur hún alltaf réttu hitastigi og er aldrei of heit né of köld en þó úr 90 prósent dún ef verða skyldi mjög kalt. Gæsadúnsængin er dásamlega lauflétt, umvefjandi og hlý, og maður upplifir einstaka vellíðan og þægindi með nýrri og vandaðri sæng á þreyttum kroppnum,“ segir Hafdís.Betra bak selur einstaka leðurhægindastóla með stillanlegum höfuðpúða og sem hægt er að leggja alveg niður. Náttslopparnir eru frá Boss og Calvin Klein.MYND/STEFÁNBetra bak er opið til klukkan 20 í kvöld og annað kvöld, og til klukkan 22 á Þorláksmessu. Þar er þjónustan fyrsta flokks og tekið hlýlega á móti viðskiptavinum í jólalegri versluninni. Betra bak er í Faxafeni 5 í Reykjavík og á Akureyri og Ísafirði. Sími 5 888 477. Sjá nánar á betrabak.is
Mest lesið Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Ósanngjarnt hvernig stúlkan var dregin inn í umræðu sem var að miklu leyti „algjör þvæla“ Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Lífið Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar Lífið Fleiri fréttir Spennan magnast í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum! Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Svefninn mun dýpri og betri með tilkomu Neubria Sleep Stórkostleg áhrif á fíngert hár Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Þetta eru snyrtivörurnar sem skipta mestu máli Troðfullt á fermingarkvöldi Hagkaups Páskaegg fyrir sanna bragðarefi Askja frumsýnir nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur „Femarelle það eina sem hefur virkað fyrir mig“ Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku Topp tíu listi yfir förðun og húðumhirðu fyrir ferminguna Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Spretthlaup frá grænmetisdeildinni niður í leikfangadeild Spennandi snúningur á ljúffengri klassík Sjá meira