Glamour

Eiga von á sínu fyrsta barni

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Eva Longoria á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum José Antonio "Pepe" Bastón. Parið gekk í það heilaga í fyrra og hafa orðrómar um barneignir fylgt þeim síðan. 

Longoria, sem er 42 ára gömul, er komin fjóra mánuði á leið og á því von á sér snemmsumars. Bastón, sem er eigandi suður ameríska fjölmiðafyrirtækisins Televisa, á 3 börn fyrir með leikkonunni Natalia Esperón. 








×