Viðskipti innlent

Stím-málið: Lárus Welding aftur dæmdur í fimm ára fangelsi

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm ára fangelsi vegna Stím-málsins svokallaða.

Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, var dæmdur í tveggja ára fangelsi og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Sögu Capital í 18 mánaða fangelsi.

Þorvaldur mætti við dómsuppkvaðningu í dag og sagðist ætla að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.

Dómarnir sem féllu í dag eru þeir sömu og féllu fyrir nákvæmlega tveimur árum síðan í héraði en aðalmeðferð máls hafði verið tekin upp aftur í héraðsdómi eftir að Hæstiréttur úrskurðaði um að einn dómara málsins hefði verið vanhæfur. Kostnaður við endurtekna málsmeðferð í héraði fellur á ríkissjóð.

Ingimundur Einarsson, einn þriggja dómara málsins, skilaði sératkvæði og vildi sakfella Lárus en sýkna þá Jóhannes og Þorvald.

Forsaga málsins er sú að félagið Stím fékk tæplega 20 milljarða króna lán frá Glitni til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group í nóvember árið 2007. Seljandi bréfanna var Glitnir en um var að ræða rúmlega 4 prósenta hlut í hvoru tilfelli. Veðin fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum í Glitni og FL Group.

Hófu aðalmeðferð upp á nýtt eftir vanhæfi dómara

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp fyrri dóm sinn í þann 21. desember 2015 og voru þremenningarnir fundnir sekir og dæmdir fyrir lánveitingar Glitnis til hlutabréfakaupa í Glitni og FL Group.

Hlaut Lárus þá einnig fimm ára fangelsisdóm, Jóhannes tveggja ára fangelsisdóm og Þorvaldur Lúðvík átján mánaða dóm. Þremenningarnir höfðu allir neitað sök og áfrýjuðu úr héraði til Hæstaréttar. Áfrýjunin byggði á meintu vanhæfi Sigríðar Hjaltested, eins þriggja dómara í málinu í héraðsdómi.

Sigríður lýsti yfir vanhæfi í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis í nóvember 2016 eftir að hún komst að því að í gögnum málsins væri að finna upplýsingar um fyrrverandi eiginmann hennar og barnsföður en hann starfaði hjá Glitni á sínum tíma. Þá upplýsti hún einnig að hann hefði stöðu sakbornings sem væri til meðferðar hjá Héraðssaksóknara vegna starfa hans fyrir Glitni.

Sigríður Hjaltested var vanhæf til að dæma í málinu.
Hvorki saksóknari né verjendur þremenninganna vissu af þessum tengslum Sigríðar við Glitni þegar dómur féll í Stím-málinu árið 2015. Var það mat verjenda að svipaðar aðstæður hafi verið uppi þegar Sigríður dæmdi í Stím-málinu. Þannig hafi nafn barnsföður hennar verið að finna í gögnum málsins og þegar dómur féll hafi maðurinn verið með stöðu sakbornings í þremur málum hjá sérstökum saksóknara sem síðar voru felld niður.

Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í júní fyrr á þessu ári um að aðalmeðferð málsins skyldi fara fram aftur en ástæðan var vanhæfi Sigríðar í málinu.

Á fimmta tug vitna gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins en það tók tæpar tvær vikur í héraðsdómi. Málsvarnarlaun sakborninga í héraði námu um fjörutíu milljónum króna.

Reyndu að fá Ingimund úr sæti dómara

Þremenningarnir vildu einnig meina að Ingimundur Einarsson, fyrrverandi dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, væri vanhæfur til þess að dæma í nýrri aðalmeðferð vegna eignar hans á hlutabréfum í Glitni. Ingimundur tapaði á þeim og var það mat Hæstaréttar að hann hefði vanrækt tilkynningarskyldu með því að tilkynna ekki um eign sína á hlutabréfunum í Glitni, Landsbankanum og Kaupþingi. 

Var þeirri kröfu þó hafnað af Hæstarétti að Ingimundur skyldi víkja úr sæti sínu sem dómari í nýrri aðalmeðferð Stím-málsins sem fram fór í nóvember. Sakborningarnir höfðu einnig krafist þess að Hrefna Sigríður Briem og Símon Sigvaldason myndu víkja sem dómarar úr nýrri aðalmeðferð en þau dæmdu í upphaflegri aðalmeðferð ásamt Sigríði Hjaltested.


Tengdar fréttir

Milljónatap ríkisins af Stím-málinu

Ríkið tapar milljónum króna vegna vanhæfis Sigríðar Hjalte­sted, eins þriggja dómara í Stím-málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Allt upp á nýtt í Stím-málinu

Vanhæfi dómara leiðir til þess að afar umfangsmikið hrunmál þarf að fara aftur til meðferðar í héraðsdómi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×