Innlent

Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2017

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þau sem eru tilnefnd til Manns ársins
Þau sem eru tilnefnd til Manns ársins Vísir

Vísir og Bylgjan standa fyrir vali á manni ársins 2017 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þann sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Tæplega eitt þúsund tilnefningar bárust í gegnum vefinn og í símatíma Reykjavík Síðdegis. 

Þorgeir, Kristófer og Bragi í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og blaðamenn Vísis fóru yfir tilnefningarnar og rökstuðninginn sem þeim fylgdi. Nú er búið að yfirfara þær og ljóst hvaða tíu aðilar berjast um titilinn. 

Hin tilnefndu má sjá hér að neðan í engri sérstakri röð. Neðst má svo greiða atkvæði. Kosning stendur til 29. desember. Tilkynnt verður um valið í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni á gamlársdag.

Grímur Grímsson

Yfirmaður miðlægrar deildar lögreglu sem svaraði fyrir aðgerðir lögreglu í umfangsmiklu sakamáli sem leiddi til nítján ára fangelsisdóms yfir Thomasi Möller Olsen fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur. Þótti sýna fagmennsku og yfirvegun í framkomu sinni á afar erfiðum tímum.

Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.vísir/anton brink

Stúlkurnar fjórar og Bergur Þór

Anna Katrín Snorradóttir, Glódís Tara Fannarsdóttir, Halla Ólöf Jónsdóttir og Nína Rún Bergsdóttir stigu fram undir merkjum #höfumhátt eftir umfjöllun í fjölmiðlum um uppreist æru kynferðisbrotamanna. Faðir Nínu, leikarinn Bergur Þór Ingólfsson, fór mikinn í baráttu sinni fyrir svörum frá yfirvöldum.

Vísir/Stefán/Ernir

Þátttakendur í #MeToo

Þúsundir íslenskra kvenna hafa tekið þátt í #metoo byltingunni. Þær krefjast breytinga í flestum hópum samfélagsins. Þær hafa deilt nafnlausum reynslusögum af áreiti, áreitni og ofbeldi, og kallað eftir því að karlmenn sýni ábyrgð.

Þúsundir íslenskra kvenna hafa tekið þátt í #metoo byltingunni.Vísir

Heimir Hallgrímsson

Karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér sæti á HM í Rússlandi. Ísland hafnaði í efsta sæti síns riðils í undankeppninni sem þótti afar sterkur. Strákarnir hafa aldrei áður komist í lokakeppni HM. Heimir hefur fylgt eftir frábærum árangri sem hann náði með Svíann Lars Lagerbäck sér við hlið.

Heimir Hallgrímsson, þjálfari landsliðsins.Vísir/Eyþór

Inga Sæland

Formaður Flokks fólksins sem fékk 6,9% fylgi í Alþingiskosningum í október, og ötull málsvari fyrir betri kjörum öryrkja og aldraðra. Flokkurinn fékk fjóra þingmenn kjörna í kosningunum.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.Vísir/Hanna

John Snorri Sigurjónsson

Fjallgöngugarpur sem kleif þrjá af hæstu tindum heims á árinu; Broad Peak, Lhotse og K2. Hann varð fyrsti Íslendingurinn til að klífa fjöllin þrjú.

Það voru fagnaðarfundir á Keflavíkurflugvelli í ágúst þegar John Snorri kom heim.Vísir/Jói K

Katrín Jakobsdóttir

Vinsælasti stjórnmálamaður landsins undanfarin ár tók við embætti forsætisráðherra síðla árs. Aðeins önnur konan til að gegna stöðunni. Hún leiðir samstarf Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem kom mörgum á óvart að varð lendingin eftir kosningar í október.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.Vísir/Stefán

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir

Ólafía Þórunn keppti á LPGA atvinnumótaröðinni fyrst íslenskra kvenna á árinu og náði góðum árangri. Hún keppti á tæplega 30 mótum á árinu og tryggði sæti sitt á mótaröðinni á næsta ári. Þá var hún valin í Evrópuúrvalið.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er fremsti kvenkylfingur landsins.vísir/ernir

Stefán Karl Stefánsson 

Leikarinn hæfileikaríki hefur glímt við erfið veikindi sem hann hefur ekki verið feiminn við að ræða um opinskátt. Hann hefur reynst fólki innblástur, mætt vandanum sínum með jákvæðni að vopni og minnt fólk á að lífið sé núna.

Stefán Karl Stefánsson. Vísir/Andri Marínó

Vilborg Arna Gissurardóttir

Varð í maí fyrst íslenskra kvenna til að komast á topp Mount Everest, hæsta fjalls í heimi. Um var að ræða þriðju tilraun hennar en fyrri leiðangrar hennar hlutu skjótan endi í kjölfar mannskæðra náttúruhamfara í Nepal.

Vilborg Arna Gissurardóttir. Vísir/Eyþór

Þá er komið að því. Hver er maður ársins? Taktu þátt í kosningunni hér fyrir neðan.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×