Viðskipti innlent

Nýir rekstraraðilar veitingastaðarins á Hótel Holti

"Við erum gríðarlega spennt fyrir þessu verkefni og stolt að fá tækifæri til þess vinna með HOLTIÐ og fylgja þeim rótgrónu hefðum sem mótast hafa á Hótel Holti um áratuga skeið.“
"Við erum gríðarlega spennt fyrir þessu verkefni og stolt að fá tækifæri til þess vinna með HOLTIÐ og fylgja þeim rótgrónu hefðum sem mótast hafa á Hótel Holti um áratuga skeið.“ Vísir/GVA
Nýr veitingastaður mun opna á Hótel Holti í febrúar eftir að eigendur Dill Restaurant, KEX hostels og Hótel Holts gerðu með sér samkomulag um veitingareksturinn. Staðurinn mun bera nafnið HOLT og samkvæmt tilkynningu verður Ragnar Eiríksson, núverandi yfirkokkur á DILL, yfirkokkur á Holtinu.

„Hótel Holt hefur frá upphafi verið þekkt innanlands sem utan fyrir alúð og gestrisni eigenda og starfsfólks, sem og hið einstaka safn íslenskrar myndlistar sem prýðir hótelið, ásamt því að skipa stóran sess í veitingaflóru Reykjavíkur. Hótel Holt, sem opnaði upphaflega árið 1965, hefur alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldu, en er í dag rekið af dóttur stofnendanna, Geirlaugu Þorvaldsdóttur,“ segir í tilkynningunni.

„Veitingastaðurinn HOLT mun leggja áherslu á frábæran mat og framúrskarandi úrval af léttvínum eins og gert hefur verið í húsinu í gegnum tíðina. Við erum gríðarlega spennt fyrir þessu verkefni og stolt að fá tækifæri til þess vinna með HOLTIÐ og fylgja þeim rótgrónu hefðum sem mótast hafa á Hótel Holti um áratuga skeið,“ segir Ólafur Ágústsson, talsmaður rekstraraðila.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×