Glamour

Töfrandi augu og fölar varir

Kynning skrifar
Glamour í samstarfi við Gosh sýnir hér fullkomna hátíðarförðun í einföldum skrefum þar sem stílnum er stolið frá söngkonunni Selenu Gomez. Falleg og ljúf förðun sem allir geta leikið eftir.

Í förðuninni er aðalfókusinn á augun en þar er kaldur sanseraður litur borinn á augnlokið og möttum brúnum tónum blandað saman í skyggingu, augun síðan mótuð í hálfgert möndlulag.

Dökkur augnblýantur er borinn í vatnslínu og maskari sem lengir og þykkir settur á augnhárin. Augabrúnir eru mótaðar með púðurskugga og þær greiddar með þunnu vaxi.

Léttur farði er borinn á húð, kinnar og enni fá bronsaðan lit og ljómapúður er borið ofan á kinnbein fyrir aukinn ljóma.

Varir eru mótaðar með brúnbleikum varablýanti og fölbleikur varalitur er borinn á varir.

Hér má sjá Glamour með Hörpu Kára í fararbroddi leika förðunina eftir í myndbandi sem fylgjendur okkar á Instagram fengu beint í æði í vikunni. Einfalt og þægilegt - njótið!

Myndbandið var tekið upp á Samsung Galaxy S8+.






×