Innlent

Fyrirtæki Baltasars kaupir Gufunesið á 1,6 milljarð

Birgir Olgeirsson skrifar
Markmið RVK-studios er að byggja upp svokallað svokallað menningar- og/eða kvikmyndaþorp á Gufunesi.
Markmið RVK-studios er að byggja upp svokallað svokallað menningar- og/eða kvikmyndaþorp á Gufunesi. Vísir/GVA/Anton Brink
GN Studios hefur keypt lóðarréttindi og byggingarétti í landi Gufuness af Reykjavíkurborg 1,6 milljarð króna. GN Studios er meðal annars í eigu leikstjórans Baltasars Kormáks og stofnað í tengslum við fyrirætlanir framleiðslufyrirtækisins RVK Studios að reisa kvikmyndaþorp á Gufunesi.

Kaupsamningurinn var borinn undir borgarráð fyrr í dag þar sem hann var samþykktur með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænan og Pírata gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina lögðu fram bókun þar sem þeir gerðu athugasemdir við að almennt útboð skuli ekki hafa farið fram vegna uppbyggingarinnar í Gufunesi heldur samið við einn aðila, en þeir segja að gera megi ráð fyrir að hægt verði að reisa 230 til 260 íbúðir á svæðinu.

Gerð voru tvö möt á verðmæti svæðisins og segir í sömu bókuninni að meirihlutinn hafi kosið að miða við lægra verðmatið og veita að auki tíu prósenta afslátt af því. Sögðust fulltrúarnir ekki hafa neitt á móti uppbyggingu á svæðinu í þágu skapandi greina að þeir telja að gæta verði hagsmuna borgarbúa í hvívetna þegar eignir Reykjavíkurborgar eru seldar.

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata lögðu fram bókum þar sem þeir sögðu afsláttinn veittan frá verðmatinu vegna umfangs viðskiptanna, frumkvæðis stúdíósins og þess mikla frumkvöðlastarfs í skapandi greinum sem fyrirtækið sinnir ásamt þeirri framsýnu klasauppbyggingu í kvikmyndagerð sem er að verða að veruleika í Reykjavík.

„Það er allra hagur að upp byggist í Gufunesi sannkallað Fríríki frumkvöðlanna eins og vinningstillaga hollensku arkitektastofunnar JvantSpijker kallaði Gufunes framtíðarinnar. Gufunesið verður því ekki lengur undir áburðarverksmiðju og úrgang, heldur fyrir íbúa, það verður heimili lítilla og meðalstórra fyrirtækja í fjölbreyttum atvinnugreinum, og ekki síst vagga íslenskrar kvikmyndagerðar,“ segir í bókuninni.

Í maí í fyrra var greint frá því að RVK Studios hefði keypt fjórar fasteignir sem áður tilheyrðu Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi og greiddi fyrir það 301 milljón króna.


Tengdar fréttir

Mynd að komast á „kvikmyndaþorpið“ í Gufunesi

Borgarráð hefur samþykkt að veita Sonik tækni ehf. og Exton ehf. vilyrði fyrir lóðum á svæði gömlu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. Er stefnt að því að á svæðinu verði einkum starfsemi sem tengist kvikmyndagerð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×