Viðskipti innlent

Standard og Poor's staðfestir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs

Birgir Olgeirsson skrifar
Stöðugar horfur endurspegla þá skoðun matsfyrirtækisins að möguleikarnir á frekari styrkingu opinberra fjármála vegi á móti líkunum á ofhitnun hagkerfisins á næstu tveimur árum.
Stöðugar horfur endurspegla þá skoðun matsfyrirtækisins að möguleikarnir á frekari styrkingu opinberra fjármála vegi á móti líkunum á ofhitnun hagkerfisins á næstu tveimur árum. Vísir
Matsfyrirtækið S&P Global Ratings staðfesti í dag A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs með stöðugum horfum. Í samræmi við birtingaráætlun sína staðfesti matsfyrirtækið S&P Global Ratings A/A-1 í dag lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir langtíma- og skammtímaskuldir í erlendum og innlendum gjaldmiðlum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Stöðugar horfur endurspegla þá skoðun matsfyrirtækisins að möguleikarnir á frekari styrkingu opinberra fjármála vegi á móti líkunum á ofhitnun hagkerfisins á næstu tveimur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×