Lífið

Bam Margera orðinn pabbi

Birgir Olgeirsson skrifar
Bam Margera.
Bam Margera. Vísir
Jackass-stjarnan og Íslandsvinurinn Bam Margera og eiginkona hans Nicole Boyd eignuðust lítinn dreng á Þorláksmessu sem þau hafa nefnt Phoenix Wolf Margera.

Parið hafði ákveðið nafnið áður en drengurinn kom í heiminn og birti Bam mynd af barninu á Instagram-reikningi sínum með nafninu.

Í viðtali við tímaritið People í september síðastliðnum tilkynnti Bam að þau hefðu þá þegar ákveðið nafnið, væru búin að bera það undir fjölskyldu og vini og allir verið hrifnir af því.

Rúm tvö ár eru síðan Bam Margera mætti hingað til lands til að spila með hljómsveiti sinni, The Earth Rocker, á tónlistarhátíðinni Secret Solstice þar sem hann lenti í útistöðum við íslenska tónlistarmenn.

Phoenix wolf

A post shared by Bam Margera (@bam__margera) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×