Viðskipti erlent

Hagkerfi Indlands stærra en Breta og Frakka

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Með breytingunni yrði hagkerfi Indlands það fimmta stærsta í heiminum.
Með breytingunni yrði hagkerfi Indlands það fimmta stærsta í heiminum. vísir/getty
Hagkerfi Indlands mun, árið 2018, verða stærra en hagkerfi Bretlands og Frakklands, gangi nýútgefin spá CEBR (Centre for Economics and Business Research) upp. Fréttaveita Reuters greinir frá.

Með því yrði Indland fimmta stærsta hagkerfi í heimi en Bandaríkin eru í fyrsta sæti og hafa verið til lengri tíma. Sama spá gerir hins vegar ráð fyrir því að árið 2032 muni Kína taka fram úr Bandaríkjunum.

Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir því að Kína myndi ná Bandaríkjunum ári fyrr, það er 2031, en áherslur Donalds Trump í alþjóðaviðskiptum eru ekki jafn stórtækar og gert var ráð fyrir.

Þar segir einnig að Frakkland muni taka fram úr Bretlandi á komandi árum en það muni svo að öllum líkindum snúast við aftur.

Lækkandi verð olíu verður síðan til þess að Rússland fellur í sautjánda sæti úr því ellefta árið 2032, gangi spáin upp.

Í frétt Reuters segir einnig að hagfræðingar á þeirra vegum spái hagvexti upp á 3,5 prósent á heimsvísu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×