Innlent

Stefnt að því að afgreiða fjárlagafrumvarpið úr þinginu annað kvöld

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Óhefðbundið er að þingfundir standi yfir milli jóla og nýárs.
Óhefðbundið er að þingfundir standi yfir milli jóla og nýárs. V'isir/Vilhelm
Vonir standa til þess að hægt verði að ljúka þingstörfum fyrir áramót annað kvöld, að sögn Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis.

„Við klárum bara það sem er tengt áramótunum, fjárlögin, fjáraukalögin og tekjubandorminn,“ segir Steingrímur. Auk þess eru nokkur önnur mál á dagskrá eins og veiting ríkisborgararéttar. „Það sér alveg til lands með þetta allt saman en við frestum því sem er ekki alveg bráðnauðsynlegt,“ segir Steingrímur.



Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.vísir/stefán
Tvö mál urðu að lögum fyrir jól. Annars vegar var þar um að ræða breytingar á útlendingalögum og geta útlendingar nú fengið svokallað námsmannadvalarleyfi hér á landi á grundvelli iðnnáms, en ekki bara á grundvelli háskólanáms. Ákveðið var að bregðast við með lagasetningu eftir að í ljós kom að samkvæmt nýjum útlendingalögum væri víetnömskum matreiðslu­nema, Chuong Le Bui, meinað að dvelja hér á landi.

Hins vegar voru samþykktar breytingar á dómstólalögum vegna þeirrar breytinga sem verða á dómstólaskipan í upphafi nýs árs þegar Landsréttur tekur til starfa.

Á þingfundi í dag mun svo fara fram sérstök umræða um fátækt. Þar er Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, málshefjandi en Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, verður til andsvara.

Á meðal þingmála sem verður frestað til næsta árs eru lokafjárlög ársins 2016 og stjórnartillaga um stofn­efnahagsreikninga ríkisins. 

Að auki eru fjölmörg þingmannamál sem bíða umræðu. Eins og frumvarp þingmanna Pírata um að ekki verði unnt að leggja lögbann á fréttir fjölmiðla án undangengins úrskurðar héraðsdóms, þingsályktun Samfylkingarinnar um aðgengi að sálfræðingi í framhaldsskólum og fleira. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×