Enski boltinn

Paulinho hefur rætt við Coutinho um Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það eru nokkrir mánuðir síðan Coutinho gerði allt sem hann gat til þess að komast frá Liverpool en í dag fær hann að vera fyrirliði liðsins.
Það eru nokkrir mánuðir síðan Coutinho gerði allt sem hann gat til þess að komast frá Liverpool en í dag fær hann að vera fyrirliði liðsins. vísir/getty
Þó svo það hafi ekki gengið hjá Philippe Coutinho að komast til Barcelona síðasta sumar þá eru orðrómarnir um að hann sé á förum þangað alls ekki dauðir.

Það er meira að segja talað um að Barcelona muni jafnvel freista þess að reyna að fá Brasilíumanninn strax í janúar.

Miðjumaður Barcelona, Paulinho, spilar með Coutinho í brasilíska landsliðinu og vill ólmur fá vin sinn yfir til Spánar. Hann viðurkennir að hafa rætt við Coutinho um lífið í borginni og hjá félaginu.

„Ég grínast oft með að það sé þegar byrjað að leita að húsi fyrir hann,“ sagði Paulinho léttur.

„Annars er ég að gefa honum allar helstu upplýsingarnar. Hlutina sem skipta máli fyrir hann og hans fjölskyldu. Hann veit að Barcelona er góð borg fyrir hann og fjölskylduna. Hann mun ekki sjá eftir því að koma hingað ef hann gerir það.“

Paulinho er þriðji leikmaður Barcelona sem talar um Coutinho í fjölmiðlum. Áður höfðu Luis Suarez og Ivan Rakitic gert það. Þá sögðust þeir vera mjög spenntir fyrir því að fá leikmanninn til félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×