Gæði, gæsahúð og gleði 28. desember 2017 10:05 Þórdís Anna Gylfadóttir er mótstjóri landsmótsins og um leið fyrsta konan sem stýrir keppnishluta Landsmóts hestamanna. MYND/EYÞÓR
Landsmót hestamanna verður haldið í Reykjavík dagana 1.-8. júlí árið 2018 en forsala aðgöngumiða rennur út á miðnætti 31. desember. Það er hestamannafélagið Fákur í Reykjavík sem heldur þetta 23. landsmót og mun það fara fram á félagssvæði hestamannafélagsins Fáks í Víðidal í Reykjavík. Þórdís Anna Gylfadóttir er mótstjóri landsmótsins og um leið fyrsta konan sem stýrir keppnishluta landsmóts hestamanna. Framkvæmdastjóri Landsmótsins alls er hins vegar Áskell Heiðar Ásgeirsson. Þórdís hefur unnið að verkefnum tengdum hestum nánast alla starfsævi sína en tekur nú þátt í undirbúningi landsmótsins í fjórða sinn. „Landsmót hestamanna er einn stærsti íþróttaviðburður sem haldinn er hérlendis og mótið næsta sumar verður engin undantekning. Við munum bjóða upp á glæsilegt mótssvæði, vellir og aðstaða er til fyrirmyndar og nóg af hesthúsaplássum fyrir alla. Það er búið að fjölga áhorfendabrekkum svo nú verður hægt að sitja nánast hringinn í kringum keppnisvöllinn.“Landsmót hestamanna er einn stærsti íþróttaviðburður ársins.MYND/GÍGJA D. EINARSDÓTTIRMögnuð reiðmennska Fyrsta dag mótsins, sunnudaginn 1. júlí, verður forkeppni í barna- og unglingaflokki. Ókeypis verður inn á Landsmótið þann daginn að sögn Þórdísar og því gefst öllum áhugasömum kostur á að kíkja á Landsmót í a.m.k. einn dag. „Reiðmennskan og hestakosturinn í yngri flokkum er oft á tíðum algjörlega magnaður og það er hrikalega gaman að fylgjast með sýningum yngstu keppendanna. Þarna er frábært tækifæri til þess að kynna sér betur íslenska hestinn, hestaíþróttina og hestasamfélagið allt.“ Auk keppni og kynbótasýninga verður sett upp vegleg hliðardagskrá sem samanstendur af fræðslu, fyrirlestrum og sýnikennslu. „Svo má ekki gleyma skemmtidagskránni, bæði fyrir börn og fullorðna, sem er fjölbreytt að vanda“. Knattspyrnuunnendur sem koma á Landsmót munu svo sannarlega ekki missa af neinu. „Boðið verður upp á fyrsta flokks aðstöðu á mótssvæðinu til að njóta beinna útsendinga frá HM í Rússlandi á risaskjá. Það er því óhætt að lofa frábærri fótboltastemmingu í bland við bestu hesta landsins í Víðidal í Reykjavík næsta sumar.“Kynslóðir koma saman Landsmót hestamanna er sannarlega einstök upplifun segir Þórdís, gæði, gæsahúð og gleði allt í senn. „Þarna eru samankomnir bestu hestar og knapar landsins. Ungar og upprennandi stjörnur í bland við eldri og reyndari. Þau eru mörg augnablikin sem maður gapir yfir íslenska hestinum sem alltaf nær að koma manni á óvart með ótrú- legri frammistöðu og afköstum.“ Landsmót er líka hestamannamót, þar sem kemur saman fjöldinn allur af fólki; hestamenn og aðrir unnendur íslenska hestsins á öllum aldri. „Hér njóta og skemmta sér margar kynslóðir saman. Það geta allir fundið sína tengingu við íslenska hestinn, hann er svo ótrúlega mögnuð skepna og er líka svo stór hluti af sögu okkar Íslendinga.“Fjölbreytt dagskrá Allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi á landsmótinu. „Hér verður sannkölluð veisla fyrir unnendur íslenska hestsins. Boðið verður upp á keppni og sýningar á tveimur völlum, ræktun íslenska hestsins verða gerð góð skil og einnig verður stórt markaðssvæði fyrir þá sem vilja gera góð kaup. Börnin fá leiksvæði á besta stað, fræðsla og fyrirlestrar verða í boði fyrir þá sem vilja auka við þekkingu sína og síðast en ekki síst verður mikil gleði frá morgni til kvölds.“ Lagt var upp með að hafa dagskrá mótsins eins hestvæna og hægt er. „Það verður t.d. gefinn frídagur á milli forkeppni og keppni í milliriðlum í hverjum flokki fyrir sig. Einnig verður frídagur á milli fyrri og seinni umferðar í skeiðkappreiðum. Auk þess verður reynt að taka tillit til knapa og passað að dagarnir verði ekki of langir, þó svo að dagskráin þéttist töluvert þegar líða fer á vikuna og nái svo hámarki fimmtudag til sunnudags.“Margir erlendir gestir Í forsölunni hefur nú verið selt hlutfallslega meira af miðum til erlendra gesta heldur en áður segir Þórdís. „Íslenski hesturinn á aðdáendur út um allan heim. Hann má finna í fjölmörgum löndum og hingað kemur mikill fjöldi ferðamanna ár hvert til að kynnast íslenska hestinum. Markaðssetning íslenska hestsins hefur einnig aukist gífurlega með tilkomu Íslandsstofu og markaðsverkefnisins Horses of Iceland.“ Forsala aðgöngumiða er nú í hámarki en hún rennur út á miðnætti 31. desember. Eingöngu verða 3.500 miðar í boði í forsölu. Verð á vikupassa fyrir fullorðna í forsölu er 15.900 kr. en fullt verð á vikupassa við upphaf móts verður 23.500 kr.Greinin er kynning á Landsmóti hestamanna. Nánari upplýsingar má finna á landsmot.is.
Hestar Mest lesið Sjö hættulegar gryfjur fyrir hjón og pör að falla í Áskorun Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lífið Lekker hæð listakonu til sölu Lífið „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Lífið Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Lífið Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Bíó og sjónvarp Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Lífið Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Sjá meira