Lífið

Rihanna syrgir frænda sinn sem féll í skotárás

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tavon og Rihanna saman fyrir nokkrum dögum.
Tavon og Rihanna saman fyrir nokkrum dögum. vísir/instagram
Tónlistarkonan Rihanna syrgir um þessar mundir frænda sinn sem féll frá í skotárás á þriðjudaginn. Þau höfðu eytt jólunum saman á Barbados.

Rihanna greinir frá þessu á Instagram og deilir í leiðinni myndum af frændsystkinunum.

„Hvíldu í friði frændi. Ég trúi ekki að það var bara í gær sem ég hélt síðast í höndina á þér. Elska þig að eilífu,“ segir Rihanna á Instagram.

Maðurinn hét Tavon Kaiseen Alleyne og var hann skotinn nokkrum sinnum er hann gekk nálægt heimili sínu á Barbados. Hann var aðeins 21 árs.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×