Bílar

Kína framlengir skattaafslátt á rafmagnsbíla

Finnur Thorlacius skrifar
Kínverjar hafa framlengt skattaafsláttinn á rafmagns- og tengiltvinnbílum í 3 ár, líkt og gert hefur verið hér á landi.
Kínverjar hafa framlengt skattaafsláttinn á rafmagns- og tengiltvinnbílum í 3 ár, líkt og gert hefur verið hér á landi.
Sá skattaafsláttur sem veittur hefur verið kaupendum á rafmagns- og tengiltvinnbílum í Kína hefur verið framlengdur til ársins 2020. Til stóð að afnema þennan skattaafslátt við enda þessa árs en hann hefur nú verið framlengdur til ársloka 2020, eða um full 3 ár.

Þessi ákvörðun er í takt við nýjar reglur sem bílaframleiðendum þar í landi er gert að hlýta til að minnka mengun í landinu og hvetja þá til að framleiða umhverfisvæna bíla. Óvíða í heiminum er meiri mengun en á þéttbýlum svæðum í Kína og því ekki skrítið að yfirvöld reyni að stemma stigu við aukningu hennar.

Kínversk stjórnvöld vilja að auki skapa umhverfi fyrir bílaframleiðendur í landinu til að taka forystu í þróun og framleiðslu umhverfisvænna bíla í samkeppninni við bílaframleiðendur annarsstaðar í heiminum. Sala á rafmagns- og tengiltvinnbílum í Kína hefur aukist um 51,4% frá janúar til nóvember á þessu ári, en alls hafa selst þar 700.000 slíkir bílar í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×