Viðskipti innlent

Víkingaheimur, torfbæir og brimbrettaævintýri í Startup Tourism

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Alls bárust 113 umsóknir í Startup Tourism. Af þeim hópi voru 25 umsækjendur teknir í viðtöl og hafa tíu nú verið valdir til þátttöku.
Alls bárust 113 umsóknir í Startup Tourism. Af þeim hópi voru 25 umsækjendur teknir í viðtöl og hafa tíu nú verið valdir til þátttöku.
Tíu fyrirtæki hafa verið valin til þáttöku í Startup Tourism, tíu vikna viðskiptahraðli á sviði ferðaþjónustu, sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu.

Verkefninu er ætlað að veita þátttakendum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd fæðist þar til viðskipti taka að blómstra. Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðalinn sem hefst þann 15. janúar næstkomandi og verður til húsa í nýju húsnæði Íslenska ferðaklasans að Fiskislóð 10.

Óskað var eftir eftir lausnum sem gætu fjölgað afþreyingarmöguleikum í ferðaþjónustu á Íslandi, styrkt innviði greinarinnar og stuðlað að dreifingu ferðamanna um allt land, allan ársins hring.

Alls bárust 113 umsóknir í Startup Tourism. Af þeim hópi voru 25 umsækjendur teknir í viðtöl og hafa tíu nú verið valdir til þátttöku.

Um er að ræða fjölbreytt fyrirtæki sem koma vítt og breitt af landinu og vinna bæði að tæknilausnum á sviði ferðaþjónustu og nýjum eða betri afþreyingarmöguleikum. Í tíu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan ferðaþjónustunnar og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.

Bakhjarlar Startup Tourism eru Isavia, Íslandsbanki, Bláa Lónið og Vodafone, en Icelandic Startups og Íslenski ferðaklasinn sjá um framkvæmd verkefnisins.

Eftirtalin tíu fyrirtæki taka þátt í Startup Tourism árið 2018:

Arctic Surfers

Sérhæfð ferðaþjónusta fyrir brim-, róðra- og snjóbrettaiðkendur í ævintýraleit

Havarí 

Gisting og viðburðir á lífrænu býli í Berufirði

Igloo Camp

Einstök tjaldhótel í stórbrotinni náttúru

Kaffi Kú og The Secret Circle

Ferðaþjónusta og upplifun í Eyjafjarðarsveit

Propose Iceland 

Viðburðaþjónusta fyrir ferðamenn á biðilsbuxum

Pure Magic 

Leikhúsupplifun byggð á íslenskum sagnaarfi

basicRM 

Sjálfvirkni í verðlagningu fyrir ferðaþjónustu

Stórsaga 

Víkingaheimur í Mosfellsdal

Under the Turf 

Þjóðleg upplifun í gömlum torfbæ í Borgarnesi

When in Iceland

Veflausn sem tengir erlenda ferðamenn við einstaklinga sem vilja bjóða uppá afþreyingatengda ferðaþjónustu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×