Innlent

Uppgjör Vísis 2017: Ár öfga

Tinni Sveinsson skrifar
Minningarganga um Birnu Brjánsdóttur fór fram 29. janúar.
Minningarganga um Birnu Brjánsdóttur fór fram 29. janúar. Vísir/Ernir
Vísir gerir hér upp árið sem er að líða í stuttu myndbandi.

Mörg alvarleg mál voru áberandi. En Íslendingar fögnuðu einnig mörgu, þar á meðal þátttökuréttinum á HM í Rússlandi á næsta ári.

Undanfarnar vikur hefur Vísir gert upp árið, bæði hér heima og erlendis, en óhætt er að segja að árið hafi verið viðburðaríkt. Hér má lesa uppgjörsfréttir fyrir 2017.

Um leið og við þökkum ykkur samfylgdina á árinu sem er að líða heitum við því að færa ykkur áfram traustar fréttir af öllu milli himins og jarðar.

Jafnframt minnum við á að lesendur geta sett sig í samband við einstaka fréttamenn með því að smella á nafn þeirra við greinar. Þá er hægt að senda tölvupóst á ritstjórnina á netfanginu ritstjorn@visir.is eða hafa samband í síma 512-5200.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×