Lífið

Tæplega tuttugu ára hjónabandi lokið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jamie og Lousie giftu sig fyrir 19 árum.
Jamie og Lousie giftu sig fyrir 19 árum.
Louise og Jamie Redknapp eru skilin en frá þessu greina berskir fjölmiðlar í dag. Skilnaðurinn var staðfestur í gær en þau höfðu verið gift í 19 ár og hefðu fagnað tuttugu ára brúðkaupsafmæli í júní á næsta ári. Þau giftu sig árið 1998 og fór athöfnin fram á snekkjunni Lady Tamara í Bermúda.

Jamie Redkknapp var á sínum tíma atvinnumaður í knattspyrnu og lék meðal annars með Liverpool og Tottenham.

Louise er helst þekkt fyrir sönghæfileika sína og er hún mjög þekktur tónlistarmaður í Bretlandi en starfar helst sem sjónvarpskona í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×