Erlent

Rannsaka líkfund í Stokkhólmi sem morð

Anton Egilsson skrifar
Lögregla hefur girt af íbúðina.
Lögregla hefur girt af íbúðina. Vísir/Getty
Tveir einstaklingar fundust látnir í íbúð í Södertälje í Stokkhólmi í dag. Að því er fram kemur í frétt SVT telur lögreglan í Stokkhólmi að einstaklingarnir hafi verið myrtir og er málið nú til rannsóknar.

Lögregla fékk tilkynningu frá einstaklingi sem kom að líkunum tveimur um klukkan hádegi í dag og hefur nú girt af íbúðina.

„Líkin voru fundin af einstaklingi sem gerði lögreglu viðvart í kjölfarið. Öðru getum við ekki greint frá eins og stendur,” sagði Sven Erik-Olsson, yfirmaður lögreglunnar í Stokkhólmi, í samtali við SVT.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×