Fótbolti

Sverrir tryggði Rostov sigur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sverrir Ingi með Helga Kolviðssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara Íslands
Sverrir Ingi með Helga Kolviðssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara Íslands vísir/eyþór
Sverrir Ingi Ingason skoraði sigurmark Rostov gegn Ufa í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Sverrir skallaði aukaspyrnu Alexander Zuev í markið á 22. mínútu og kom heimamönnum í Rostov yfir.

Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum og fór Rostov upp í tíunda sæti deildarinnar með sigrinum.

Markið var aðeins annað mark Sverris fyrir Rostov í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×