Körfubolti

Tap hjá Ægi og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ægir Þór Steinarsson
Ægir Þór Steinarsson vísir/ernir
Ægir Þór Steinarsson var í liði Tau Castello sem tapaði fyrir Carramimbre Valladolid í spænsku 1. deildinni í körfubolta í kvöld.

Ægir kom inn af bekknum hjá Castello og skoraði 8 stig, tók 2 fráköst og gaf 1 stoðsendingu.

Heimamenn í Carramimbre voru sterkari aðilinn í leiknum frá upphafi og náðu fljótt ágætri forystu. Þeir unnu að lokum sautján stiga sigur, 90-73.

Það var mikil harka í leiknum, en tveir leikmenn Castello fengu fimm villur, og náði Ægir sér í fjórar. Enginn leikmaður Carramimbre var rekinn á bekkinn með fimm villur, tveir komust nálægt því með fjórar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×