Enski boltinn

Messan: Klopp breytir byrjunarliðinu langmest

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rótering Jurgen Klopp á mannskap Liverpool hefur verið mikið í umræðunni eftir jafntefli liðsins gegn Everton í gær. Klopp gerði sex breytingar á byrjunarliðinu fyrir grannaslaginn.

Sérfræðingarnir í Messunni á Stöð 2 Sport ræddu Klopp í gær og kom það ekki á óvart að Þjóðverjinn hefði gert breytingar.

„Klopp er búinn að gera þetta. Hann er búinn að gera flestar breytingar á byrjunarliðinu, 59. Næsta lið fyrir neðan hefur gert 39 breytingar og það er West Ham,“ sagði Bjarni Guðjónsson.

„Það hefur alveg virkað ágætlega en það hefði verið voða fínt fyrir þá að vera komnir með tveimur stigum meira núna.“












Fleiri fréttir

Sjá meira


×